Enski boltinn

Squillaci í læknisskoðun hjá Arsenal

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Sebastien Squillaci fer í læknisskoðun hjá Arsenal á morgun. Í kjölfarið mun hann skrifa undir samning við félagið.

Squillaci er þrítugur varnarmaður sem kemur frá Sevilla. Kaupverðið er talið vera 6,5 milljónir punda.

Á heimasíðu Sevilla er staðfest í kvöld að félögin hafi náð saman varðandi kaupverð og að Squillaci muni gangast undir læknisskoðunina á morgun.

Hann er þar með annar Frakkinn sem Arsene Wenger kaupir í vörnina í sumar, hinn er Laurent Koscielny. William Gallas, Sol Campbell og Mikael Silvestre fóru allir frá félaginu í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×