Fjölgað um 35% á vanskilaskrá 12. október 2010 06:00
Íslendingum sem eru í svo miklum skuldakröggum að þeir eru komnir á vanskilaskrá hefur fjölgað um 35 prósent á tveimur árum. Um 22 þúsund Íslendingar eru með skuldir sem komnar eru í löginnheimtu, þar sem hefðbundnum lögfræðilegum innheimtuaðgerðum er beitt við innheimtu kröfunnar, og þar með á vanskilaskrá. Þetta eru um átta prósent landsmanna átján ára og eldri, að því er fram kemur í samantekt miðlunarfyrirtækisins Creditinfo. Aukningin hefur verið mikil frá því fyrir bankahrun. Þegar hópurinn var hvað minnstur, seint á árinu 2007 og í upphafi árs 2008, voru tæplega sextán þúsund einstaklingar með skuldir í löginnheimtu sem lögfræðingar reyna að innheimta. Í september 2008, rétt fyrir hrun, voru ríflega 16.400 á vanskilaskrá. Undanfarna mánuði hefur hægt á fjölgun löginnheimtumála. Það skýrist að mestu leyti á inngripum bankanna, til dæmis með frystingu á lánum, samkvæmt upplýsingum Creditinfo. Í nýrri könnun Umboðsmanns skuldara kemur fram að fáir þeirra sem eiga yfir höfði sér nauðungaruppboð hafa nýtt sér úrræði vegna greiðsluerfiðleika. Ögmundur Jónasson dómsmálaráðherra mælir á næstunni fyrir frumvarpi þar sem er gert ráð fyrir framlengingu á þeim tíma sem hægt er að sækja um frest á lokanauðungarsölu. Hann segir að niðurstaða könnunarinnar breyti ekki forsendum frumvarpsins. „Þessi frestur rennur út í lok þessa mánaðar og það sem þetta frumvarp gerir er að lengja tímann sem hægt er að óska eftir þessum fresti til mars á næsta ári. Þannig að það er ekki farið að reyna á þetta." -bj , þj
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira