Innlent

Lögreglan lýsir eftir stolnu fjórhjóli

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að fjórhjóli sem stolið var úr húsnæði fyrirtækis við Fossaleyni í Grafarvogi fyrir hálfum mánuði. Að sögn lögreglu er um að ræða Polaris Sportsman 800, grænt og svart að lit, skráningarnúmer SO-G77.

Þeir sem geta veitt upplýsingar um málið eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×