Fyrrverandi utanríkisráðherra Mexíkó vill lögleiða Maríjúana 3. febrúar 2010 08:18 MYND/AP
Bandaríkin og Mexíkó ættu að lögleiða Maríjúana og slá þannig vopnin úr höndum eiturlyfjahringa sem þrífast við landamærin. Þetta segir fyrrverandi utanríkisráðherra Mexíkó, Jorge Castaneda í viðtali á CNN sjónvarpsstöðinni. Hann segir það fáránlegt að Mexíkanar reyni hvað þeir geti til þess að stoppa flæði eiturlyfa yfir til Bandaríkjanna á meðan notkun þess hefur verið leyfð í Kalíforníu gegn framvísun lyfseðils. Hann bendir á tölur frá Fíkniefnalögeglunni bandarísku sem áætlar að um 60 prósent af hagnaði Mexíkönsku eiturlyfjahringanna komi frá innflutningi og sölu á maríjúana. Hann segir samt að það sé þýðingarlaust að reyna þetta sunnan landamæranna ef bandarísk yfirvöld taki ekki þátt. Castaneda gagnrýnir einnig harðlega forseta Mexíkó Felipe Calderone, fyrir að lýsa yfir stríði gegn eiturlyfjahringunum, en talið er að 17 þúsund manns hafi týnt lífi í þeim átökunum síðan Calderone tók við embættinu í desember 2006. 900 manns féllu í janúar á þessu ár og hefur tala látinna aldrei verið hærri í einum mánuði. 45 þúsund mexíkanskir hermenn aðstoða nú lögregluna í bæjum og borgum við landamæri Bandaríkjanna í baráttunni við eiturlyfjahringina. Tollayfirvöld í bandarísku borginni San Diego, sem er við landamæri Mexíkó, fundu í gær tæpt tonn af Maríjúana falið í flutningabíl sem var að flytja banana yfir landamærin. Eitulyfjahundar þefuðu efnið uppi en virði þess á götum Bandaríkjanna er talið slaga í hundrað milljónir íslenskra króna. Aðeins er vika síðan enn stærri smyglsending uppgötvaðist á sömu landamærastöð.
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Sjá meira