Erlent

Flaggskip Nelsons í flösku á Trafalgartorgi

Óli Tynes skrifar
Skip Nelsons í flösku, heitir listaverkið.
Skip Nelsons í flösku, heitir listaverkið. Mynd/AP

Risastór glerflaska með líkani af HMS Victory flaggskipi Nelsons í orrustunni við Trafalgar var afhjúpuð á Trafalgartorgi í Lundúnum í dag.

Trafalgartorgið er tileinkað sigrinum sem breski flotinn undir stjórn Nelsons lávarðar vann á sameinuðum flotum Frakklands og Spánar árið 1805.

Það var jafnframt síðasta sjóorrusta Nelsons því hann féll þar undir lokin fyrir riffilkúlu franskrar skyttu.

Á torginu er einnig stytta af Nelson á risastórum stöpli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×