Erlent

AGS mótmælt í Búkarest

Óli Tynes skrifar
Mótmæli í Búkarest í dag.
Mótmæli í Búkarest í dag. Mynd/AP

Þúsundir ellilífeyrisþega fóru út á götur Búkarest höfuðborgar Rúmeníu í dag til þess að mótmæla niðurskurði sem gerður er að kröfu Alþjóða gjaldeyrissjóðsins.

Niðurskurðurinn felur meðal annars í sér að laun opknberra starfsmanna eru lækkuð um 25 prósent og ellilífeyrisþega um 15 prósent.

Margvíslegur annar niðurskurður hefur verið boðaður. Verkalýðsfélög hafa hótað allsherjarverkfalli strax í næstu viku.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×