Stuðnings- og traustsyfirlýsing við Ísland 25. febrúar 2010 04:45 Höfuðstöðvar framkvæmdastjórnarinnar. Íslenska samninganefndin heldur áfram sinni heimavinnu á meðan beðið er eftir formlegri ákvörðun ráðherra Evrópusambandsins um hvort hefja beri aðildarviðræður. fréttablaðið/bþs „
Mér finnst þetta jákvætt álit og í því felst viðurkenning á Íslandi sem samstarfsríki innan EFTA og EES og jafnframt á aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að endurreisa íslenskt efnahagslíf. Vissulega kemur fram að margt sé eftir en líka að við séum á réttri leið. Þess vegna finnst mér felast í þessu stuðnings- og traustsyfirlýsing við Ísland.“ Þetta segir Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra Íslands í Brussel og aðalsamningamaður, um álit framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um aðildarumsókn Íslands. Framkvæmdastjórnin telur Ísland fullnægja öllum skilyrðum sem umsóknarríki og leggur til við aðildarríkin að aðildarviðræður verði hafnar. Hugsanlegt er að formleg ákvörðun þar um verði tekin á fundi ráðherra ESB í marslok. Stefán Haukur segir Ísland fá jákvæða einkunn í flestu og raunar mjög jákvæða í sumum málaflokkum. Niðurstaðan sé að viðræður um málefni er varða EES og Schengen ættu ekki að verða flóknar. Aðlögun þurfi á öðrum sviðum, svosem í sjávarútvegi, landbúnaði og byggðamálum en það komi ekki á óvart. „Það hefur alltaf legið fyrir og um það verður samið. Viðræðurnar munu ganga út á hvaða sérlausnum við getum náð fram,“ segir Stefán Haukur. Eitt og annað í íslensku þjóðlífi er gagnrýnt. Til dæmis dómstólar, hagsmunatengsl, bankahrunið og einkavæðing fyrirtækja. „Það má kannski segja að vinur til vamms segi,“ segir Stefán Haukur. „Og ég tel að við þurfum að taka þessar ábendingar alvarlega og reyna að bregðast við þeim. Evrópusambandið veiti ríkjum í raun aðhald hvað ýmislegt svona lagað varðar.“ Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkisnefndar Alþingis, segir ekki koma á óvart að framkvæmdastjórnin telji Ísland uppfylla skilmála fyrir aðild. Hann er ekki þeirrar skoðunar að Alþingi muni á næstu mánuðum og misserum drífa í að laga íslenska löggjöf að löggjöf ESB til að greiða fyrir aðild. „Það liggur ekki á því enda liggur ekki fyrir hver ákvörðun þjóðarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslu verður. En við getum auðvitað tekið upp ábendingar um atriði sem okkur finnast sjálfsögð mál, burtséð frá aðild að ESB.“ bjorn@frettabladid.is Stefán Haukur Jóhannesson
Mest lesið Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Sigríður Björk aftur færð til Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent Foksandur og rykagnir búa í þokunni Innlent Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Innlent Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Innlent „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Erlent Fleiri fréttir Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Einn handtekinn í umfangsmikilli lögregluaðgerð á Akureyri Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Sjá meira
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent