Víða ófært 25. febrúar 2010 19:29
Vegna veðurs verður reynt að halda leiðinni frá Borgarnesi að Hvalfjarðargöngum og á Akranes opinni til klukkan 21:30. Eftir það er ekki tali öruggt að vera á ferðin á þessum slóðum. Ófært er nú orðið á nokkrum stöðum á landinu. Meðal annars á Mýrdalssandi og Reynisfjalli við Vík í Mýrdal, einnig er ófært á Siglufjarðarvegi, um Þröskulda og í Reykjólasveit. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Snjóþekja og snjókoma er á Reykjanesbraut og raunar á öllu suðvesturhorninu. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Mosfellsheiði. Á Suðurlandi eru hálkublettir og éljagangur á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Á öðrum leiðum eru hálkublettir, éljagangur og sumstaðar snjóþekja. Þæfingsfærð er á Vesturlandi og skafrenningur undir Hafnarfjalli að Hvalfjarðargöngum og í uppsveitum Borgarfjarðar. Hálkublettir og skafrenningur er svo í Borgarfirði, á Holtavörðuheiði og á Snæfellsnesi. Á Vestfjörðum er hálka, hálkublettir, éljagangur eða skafrenningur á flestum leiðum. Þungfært og stórhríð er á Steingrímsfjarðarheiði og á Ströndum og þar er ekki ferðaveður. Ófært er um Þröskulda og í Reykhólasveit. Þæfingsfærð er frá Kollafirði að Þorskafirði. Á Norðurlandi vestra er ófært á Siglufjarðarvegi. Hálka og skafrenningur er Þverárfjalli og í Langadal. Í Skagafirði eru hálkublettir og éljagangur. Á Öxnadalsheiði er skafrenningur og snjóþekja. Norðaustanlands er éljagangur og hálka í öllum Eyjafirðinum og á Víkurskarði. Éljagangur og snjóþekja er svo við Mývatn en hálka ásamt einhverjum skafrenning er á flestum öðrum leiðum. Á Austurlandi eru hálkublettir á Möðrudalsöræfum og snjóþekja á Vopnafjarðarheiði. Snjóþekja er mjög víða eins og til að mynda á Fjarðarheiði og á Vatnsskarði eystra. Hálka er þó á Fagradal og í Oddskarði en svo eru hálkublettir frá Fáskrúðsfirði að Höfn. Suðaustanlands er snjóþekja eða hálkublettir ásamt einhverjum éljagangi. Ófært er þó orðið á Mýrdalssandi og á Reynisfjalli.
Mest lesið Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Fleiri fréttir „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Sjá meira