Segist ekki setja skattfé í einkaspítalann 25. febrúar 2010 04:30 Kjartan Þór Eiríksson segir endurbyggingu gamla herspítalans burðarásinn í uppbyggingu þekkingarmiðstöðvar í heilsugeira á Ásbrú. Fréttablaðið/Vilhelm
Tekist var á um yfirlýsingar Ögmundar Jónassonar, þingmanns VG, um væntanlegt einkasjúkrahús á gamla varnarsvæðinu á Alþingi í gær. Fram hefur komið að leggja þurfi eitt hundrað milljónir króna til að endurbyggja gamla hersjúkrahúsið á svæðinu. Hefur Ögmundur lýst því yfir að þeir peningar hljóti að koma úr vösum skattgreiðenda og það á sama tíma og skera þurfi niður í heilbrigðiskerfinu. Kjartan Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Kadeco, Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar, áréttar að 100 milljónirnar séu ekki skattfé. Hann segir að í heild hafi þróun á svæðinu á Keflavíkurflugvelli skilað heildarhagnaði í ríkissjóð. „Og þá fjármuni nýtum við til áframhaldandi uppbyggingar,“ segir hann. Um leið segir Kjartan ljóst að ríkið hafi margfaldar tekjur af fjárfestingunni í uppbyggingu sjúkrahússins. Áætlað sé að árvissar skatttekjur ríkisins af störfum sem vegna hennar verði til nemi tæpum 300 milljónum króna á ári. Þá hjálpi fjárfestingin við að auka tekjur af öðrum eignum Kadeco, svo sem vegna íbúðablokka sem leigðar verði undir sjúklinga og aðstandendur. Ótaldar séu þá afleiddar tekjur vegna aukinna umsvifa. Þau hafi áhrif á ferðamennsku og fleiri svið. Þannig myndi koma fjögur þúsund gesta í sjúkrahúsið þýða sölu á átta til sextán þúsund flugsætum. Auknar tekjur flugfélaga gætu numið um 800 milljónum á ári. - óká
Mest lesið Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Innlent Segir vopnahlé í höfn Erlent Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Innlent Flaug í einkaflugi með Støre Innlent Trump þakkar Írönum fyrir að láta vita af sér Erlent Fleiri handteknir í Borgarnesi Innlent Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Innlent Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Innlent Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Innlent Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Innlent Fleiri fréttir Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Átök breiðast út í Mið-Austurlöndum, virkjanaáform og brúðkaup Bezos Gert að greiða fyrrverandi manni sínum bætur vegna dreifingar á nektarmynd Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Leita fulltingis forseta til að fá upplýsingar um veiðigjöld Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Kona féll í Svöðufoss „Það gengur ekki að þingið sé tekið í gíslingu“ „Landslið barna“ tekið til starfa á Suðurnesjum Grunar að fjárheimildir ætlaðar þjónustu hafi farið í launakostnað „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Flaug í einkaflugi með Støre Réðst á einstakling á sjötugsaldri með hníf Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Árásum á Íran haldið áfram og enn þráttað um veiðigjöld Neita öll sök í Gufunessmálinu Váleg þróun að ríki telji sig ekki þurfa að færa rök fyrir því að beita hervaldi Hyggst setja RÚV „talsverðar skorður“ í þágu einkarekinna fjölmiðla Handtekinn fyrir að sveifla hamri Sjálfboðaliðar að bugast: Mikil örvænting meðal gæludýraeigenda Kjarnavopnvædd klerkastjórn sé ógn við Norðurlönd Álftapar með fjóra unga við Hótel Rangá vekur athygli Sagt að hann gæti ekki klárað námið en gerði það samt Sjá meira