Bandarískum trúboða í Norður-Kóreu veitt frelsi 6. febrúar 2010 11:32 Robert Park.
Trúboðanum Robert Park var sleppt úr haldi Norður-Kóreu og er nú í Kína. Robert var handtekinn í Norður-Kóreu á jóladag á síðasta ári þegar hann kom fótgangandi yfir frosnu ána Tumen. Robert, sem er 28 ára, er bandarískur ríkisborgari búsettur í Arizona en hann er af asískum uppruna. Hann virðist hafa farið til Norður-Kóreu með bréf til leiðtoga Norður-Kóreu, Kim Jong-il, en í því kom fram að hann vildi að leiðtoginn virti mannréttindi borgara sinna. Fréttastofur í Norður-Kóreu, sem eru vægast sagt hlutdrægar, hafa flutt fréttir af því að Park hafi komið til landsins uppfullur af vestrænum áróðri um að leiðtogar Norður-Kóreu færu illa með almenning. Hann hafi hinsvegar verið fullvissaður um, og reyndar játað sjálfur, að trúfrelsi og mannréttindi séu í hávegum höfð í Norður-Kóreu. Áætlað er að Robert komi til Bandaríkjanna í dag en hann hefur ekki tjáð sig við fjölmiðla enn. Athygli vekur að Robert er þriðji Bandaríkjamaðurinn sem er handtekinn af yfirvöldum í Norður-Kóreu á einu ári. Áður voru tvær blaðakonur handteknar fyrir að smygla sér inn í landið. Þær voru dæmdar í tólf ára þrælkunarvinnu fyrir það brot. Það var ekki fyrr en fyrrum forseti Bandaríkjanna, Bill Clinton, kom til Norður-Kóreu sem fallist var á að sleppa konunum.
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Fleiri fréttir Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Sjá meira