Innlent

Starfsmönnum deildarinnar ekki fjölgað

úRBÆTUR Brugðist var við ellefu af fimmtán athugasemdum sem gerðar voru vegna embættis Haraldar Johannessen ríkislögreglustjóra.
Fréttablaðið/E.Ól.
úRBÆTUR Brugðist var við ellefu af fimmtán athugasemdum sem gerðar voru vegna embættis Haraldar Johannessen ríkislögreglustjóra. Fréttablaðið/E.Ól.

Aðeins var brugðist við einni af fjórum ábendingum sem Ríkisendurskoðun gerði vegna starfsemi efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra (RLS) í stjórnsýsluúttekt árið 2006, samkvæmt eftirfylgni stofnunarinnar sem upplýst var um í gær.

Alls voru gerðar fimmtán athugasemdir við starfsemi Ríkislögreglustjóra í úttektinni, en brugðist hefur verið við ellefu. Ríkisendurskoðun telur að áætlanagerð hafi verið bætt innan deildarinnar, en öðrum ábendingum hafi ekki verið sinnt.

Til dæmis var mælt með fjölgun starfsmanna deildarinnar, sér í lagi fjölgun sérfræðinga á sviði viðskiptafræði og fjármála. Einnig var mælt með aukinni samvinnu við skattayfirvöld.

Ríkislögreglustjóri hefur ekki heldur brugðist við ábendingu um að endurskoða hámarksaldur ökutækja lögreglunnar, og að gera langtímaáætlanir um endurnýjun bílaflotans.

Ríkisendurskoðun gerði einnig úttekt á Umhverfisstofnun árið 2006. Í kjölfarið var því beint til umhverfisráðuneytisins að endurskoða löggjöf um stofnunina. Við því hefur ekki verið brugðist. Brugðist hefur verið við öðrum athugasemdum vegna stofnunarinnar.- bj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×