Handtakan sögð áfall fyrir talibanana 17. febrúar 2010 00:00 Fréttin vekur athygli í Pakistan Íbúi í Karachi les fréttir af handtöku Baradans.Nordicphotos/AFP
Ráðamenn í Bandaríkjunum og Pakistan segja það mikið áfall fyrir talibanahreyfinguna að Mullah Abdul Ghani Baradar hafi verið handtekinn. Hann er sagður yfirmaður uppreisnar talibana í Afganistan. Baradar var handtekinn í hafnarborginni Karachi, stærstu borg Pakistans, fyrir ellefu dögum. Bandarískir leyniþjónustumenn aðstoðuðu Pakistana við handtökuna. Baradar er sagður vera næstæðsti leiðtogi talibanahreyfingarinnar, næst á eftir leiðtoganum Mullah Mohammad Omar, stofnanda hreyfingarinnar, sem fór í felur eftir að hernaður Bandaríkjanna og Natóríkjanna hófst í Afganistan árið 2001. Baradar er sagður hafa verið aðstoðarvarnarmálaráðherra í ríkisstjórn talibana í Afganistan fyrir innrásina 2001. Hann er því hæst setti leiðtogi talibanahreyfingarinnar sem hefur verið handtekinn frá upphafi stríðsins. Handtaka hans þykir því mikill sigur, bæði fyrir Bandaríkjamenn og fyrir Pakistana. Ráðamenn, her og leyniþjónusta Pakistans hafa lengi verið sökuð um að hlífa leiðtogum talibana, sem taldir hafa verið í felum í landinu. Bandarískir ráðamenn hafa pirrað sig á þessu árum saman. „Ef pakistanskir ráðamenn hefðu viljað handtaka hann, þá hefðu þeir getað gert það hvenær sem er,“ segir Sher Mohammad Akhud Zada, fyrrverandi héraðsstjóri í Helmand-héraði í Afganistan en núverandi þingmaður í Kabúl.- gb
Mest lesið Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Innlent „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Innlent Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Innlent „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Innlent Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum Lífið Þrjú dæmd fyrir að flytja inn BMW fullan af kókaíni Innlent Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Innlent Tekur ekki undir greiningu Heiðu Bjargar um konur í Samfylkingunni Innlent Gríðarleg andstaða við lagareldisdrög Hönnu Katrínar Innlent „Margt óráðið í minni framtíð“ Innlent Fleiri fréttir Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka „Við getum gert það sem við viljum“ Viti ekki hvað er í samningi NATO sem semji ekki fyrir hönd Grænlands Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Sendi Evrópu tóninn: „Þú mótar ekki nýja heimsmynd með eintómum orðum“ Draumur Trumps um „Rivíeru Mið-Austurlanda“ lifir enn Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Drógu mann út á nærbuxunum sem hafði ekkert til saka unnið Sjá meira