Atkvæðagreiðslan hefst eftir hálfan mánuð 8. janúar 2010 18:55
Þjóðaratkvæðagreiðsla um Icesave lögin fer fram í síðasta lagi 6. mars en utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst eftir hálfan mánuð. Stjórnarandstaðan vill að úrslitatilraun verði gerð til nýrra samninga en það telja margir flókið á meðan þjóðaratkvæðagreiðsla stendur fyrir dyrum. Þingið kom saman klukkan hálf ellefu í morgun í fyrsta sinn á þessu ári og var frumvarp til laga um þjóðaratkvæðagreiðslu lagt fram við upphaf fundar. Þetta er sögulegur þingfundur því aldrei hafa verið sett lög um þjóðaratkvæðagreiðslu frá stofnun lýðveldis 1944. Fyrstu umræðu lauk svo síðdegis og var frumvarpinu vísað til Allsherjarnefndar. Í frumvarpinu er lagt til að þjóðaratkvæðagreiðslan um Icesave lögin fari fram eigi síðar en sjötta mars og utankjörfundur hefjist 25.janúar. Það er augljóslega mikil sátt um frumvarp til laga um þjóðaratkvæðagreiðslu á milli allra flokka. Önnur og þriðja umræða fer fram í kvöld og er búist við því að frumvarpið verið samþykkt að því loknu. Þegar frumvarpið hefur verið samþykkt verður það sent til forseta Íslands til staðfestingar. Þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir að undirbúningur atkvæðagreiðslunnar fari þá á fullt en ekkert útiloki að ríkisstjórnin leiti allra leiða til að ná betri samningi við Breta og Hollendinga. Vandasamt sé þó að standa í hvoru tveggja. „En um leið vil ég undirstrika að hvernig sem atkvæðagreiðslan þá snýst hún ekki um líf ríkisstjórnar eða setu forseta. Hún snýst bara um það hvort þjóðin staðfesti lögin sem forsetinn vísaði til hennar. Ríkisstjórnin heldur áfram að fullum krafti og Samfylkingin sinni þátttöku í henni algjörlega óháð niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar," segir Björgvin G. Sigurðsson, þingflokksformaður Samfylkingar. Skiptar skoðanir eru hins vegar á því innan vinstri grænna. Stjórnarandstaðan vill að stjórnvöld noti tímann fram að þjóðaratkvæðagreiðslu og geri lokatilraun til að leita sátta í Icesavemálinu. „Það sem ég vona, og við sjálfstæðismenn höfum lagt áherslu á, er að tíminn núna verði nýttur næstu daga og vikur til þess að gera úrslitatilraun til að rétta okkar hlut gagnvart Hollendingum og Bretum," segir Illugi Gunnarsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. „Það er gríðarlega mikilvægt að nota tækifærið þessa dagana þegar skilningur á stöðu Íslands er að aukast dag frá degi og klukkutíma frá klukkutíma til þess að fá betri niðurstöðu," segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Fleiri fréttir Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Sjá meira