Enski boltinn

Ekki fyrir viðkvæma: Myndbönd af ljótustu fótbrotum fótboltasögunnar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Valencia spilar ekki meira á þessu tímabili.
Valencia spilar ekki meira á þessu tímabili.

Antonio Valencia, leikmaður Man. Utd, fótbrotnaði á skelfilegan hátt í leiknum gegn Rangers í Meistaradeildinni í gær. Brot hans er samt ekki það hrikalegasta sem hefur sést á fótboltavellinum.

Hér að neðan má sjá tíu ljótustu fótbrot allra tíma. Rétt er að vara við þessum myndböndum sem eru alls ekki fyrir viðkvæma.

1. David Busst brotnaði skelfilega í leik með Coventry gegn Man. Utd á Old Trafford. Hann lék aldrei aftur sem atvinnumaður og Peter Schmeichel, markvörður Man. Utd, þurfti að hitta sálfræðing sem hjálpaði honum að komast yfir að hafa séð þetta skelfilega brot sem má sjá hér.

2. Eduardo brotnaði mjög illa í leik með Arsenal gegn Birmingham. Hann jafnaði sig aldrei almennilega af brotinu og leikur nú með Shaktar Donetsk. Hægt er að sjá brotið hér.

3. Leikmenn Arsenal hafa verið sérstaklega óheppnir með fótbrot og hinn ungi Aaron Ramsey brotnaði illa rétt eins og Eduardo. Ramsey er enn að jafna sig. Hægt er að sjá brotið hér.

4. Franski framherjinn Djibril Cisse hefur í tvígang jafnað sig af ljótum fótbrotum. Fyrst með Liverpool gegn Blackburn og síðan með franska landsliðinu gegn Kína.

5. Svíinn Henrik Larsson jafnaði sig af þessu viðbjóðslega fótbroti og lék síðar með Barcelona og Man. Utd. Brotið má sjá hér.

6. Alan Smith, oft kallaður Smudgie, brotnaði í leik Man. Utd og Liverpool. Hann hefur ekki verið sami leikmaðurinn eftir brotið sem má sjá hér.

7. Pólski bakvörðurinn Marcin Wasilewski hefur spilað aftur þó svo hann hafi brotnað illa hér.

8. Þjóðverjinn Ewald Lienen brotnaði reyndar ekki í leik árið 1981 en hann fékk án vafa ljótasta skurð á læri í sögu fótboltans. Sjón er sögu ríkari en hægt er að sjá lærið hér.

9. Þetta fótbrot úr Suður-afríska boltanum er einkar óhuggulegt. Það má sjá hér.

10. Franski markvörðurinn Gregoy Coupet festi takkana í grasinu og meiddist illa eins og sjá má hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×