Innlent

Krefjast raunverulegra leiðréttinga

Frá kröfufundi Hagsmunasamtaka heimilanna fyrr í vetur.
Frá kröfufundi Hagsmunasamtaka heimilanna fyrr í vetur. Mynd/Friðrik Þór Halldórsson
Hagsmunasamtök heimilanna og Nýtt Ísland boða til kröfufundar á Austurvelli á morgun klukkan 15. Þau krefjast raunverulegra leiðréttinga á lánakjörum heimilanna.

„Samtökin hvetja alla til að mæta og gera kröfur á ríkisstjórn Íslands til að bæta lánakjör landsmanna til frambúðar með almennum og samræmdum leiðréttingum á stökkbreyttum höfuðstóli lána og afnámi verðtryggingar til frambúðar. Samtökin hafa gagnrýnt ósamræmdar og villandi "leiðréttingarleiðir" bankanna sem skila sér ekki í auglýstum prósentutölum þegar lánatíminn er skoðaður í heild sinni," segir í tilkynningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×