Reynt að blása í glæðurnar 8. janúar 2010 04:30 Clinton í Katar. Fundur utanríkisráðherra Bandaríkjanna með Sheikh Hamad bin Jassim Jabr Al-Thani, forsætis- og utanríkisráðherra Katar. Nordicphotos/AFP
Ríkisstjórn Baracks Obama í Bandaríkjunum býr sig nú undir eina tilraunina enn til þess að koma friðarviðræðum Ísraela og Palestínumanna af stað. Fundir háttsettra ráðamanna í Washington og nokkrum höfuðborgum Evrópu í bæði þessari viku og næstu þjóna því hlutverki að kanna möguleikana á frekari viðræðum. Meðal annars munu fulltrúar frá Egyptalandi og Jórdaníu koma til viðræðna í Washington. Fyrsti fundurinn í þessari lotu var þó í Katar á mánudag þegar Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hitti Sheikh Hamad bin Jassim Jabr Al-Thani, forsætis- og utanríkisráðherra þess lands. Katar er eitt þeirra arabaríkja sem Bandaríkin vilja að styðji viðræðurnar. Tilraunir Baracks Obama til þess að þoka friðarferlinu áfram í fyrra, á fyrsta ári sínu í embætti, hófust af krafti þegar hann fékk þaulreyndan sáttasemjara, George Mitchell, til að taka að sér að vera sérlegur fulltrúi sinn í Mið-Austurlöndum. Þær tilraunir fóru þó fljótlega út um þúfur, enda blóðugri innrás Ísraela á Gasaströnd nýlokið og ný stjórn tekin við völdum í Ísrael sem virðist enn tregari en fyrri stjórnir til samninga. - gb
Mest lesið Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Erlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Innlent Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Erlent Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Innlent Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Innlent Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Innlent Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Innlent Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Erlent Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Erlent Fleiri fréttir Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepnir í mótmælunum Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka „Við getum gert það sem við viljum“ Sjá meira