Innlent

Óformlegar viðræður við Breta

Bretar hafa óskað eftir frekari upplýsingum um tilboð Íslendinga í Icesave deilunni. Íslenska samninganefndin er stödd í London en ekki hefur verið boðað til formlegra viðræðna. Nefndin hefur verið í viðbragðsstöðu þar ytra síðan Bretar opnuðu á nýjar viðræður á föstudag.

Samkvæmt upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu hefur nefndin verið í óformlegum samskiptum við Breta í dag og ekki er útilokað að formlegar viðræður hefjist strax eftir helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×