Íslenski boltinn

Fyrirliði Leiknismanna samdi við Val

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Halldór Kristinn Halldórsson og Friðjón R. Friðjónsson, formaður Knattspyrnudeildar Vals.
Halldór Kristinn Halldórsson og Friðjón R. Friðjónsson, formaður Knattspyrnudeildar Vals.
Halldór Kristinn Halldórsson hefur gert þriggja ára samning við Valsmenn en hann hefur verið fyrirliði Leiknismanna undanfarin ár og var einn af lykilmönnunum á bak við frábæran árangur liðsins í 1. deildinni í sumar. Þetta kom fram í fréttatilkynningu frá Val.

Halldór er 22 ára, hefur leikið 135 leiki í meistaraflokki með Leikni og skorað í þeim 5 mörk. Hann er mjög efnilegur miðvörður og hefur farið til reynslu til nokkurra liða í Evrópu s.s. eins og Hearts í Skotlandi, Bröndby í Danmörku og AZ Alkmaar í Hollandi. Halldór á einnig að baki níu U19 landsleiki og einn U17 landsleik.

Halldór segist spenntur fyrir þessu tækifæri, aðstaðan og allur aðbúnaður sé eins og best verður á kosið. "Það verður spennandi að vinna með Kristjáni. Áætlanir hans sýna að Valur er stórhuga fyrir næsta sumar," er haft eftir Halldóri í fréttatilkynningu frá Val.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×