Enski boltinn

Sir Alex getur brosað í dag - Í skýjunum með sigurinn

Elvar Geir Magnússon skrifar
Sir Alex Ferguson faðmar knapann Ruby Walsh.
Sir Alex Ferguson faðmar knapann Ruby Walsh.

Minna en sólarhring eftir að Manchester United féll úr leik í Meistaradeildinni á dramatískan hátt getur Sir Alex Ferguson leyft sér að brosa út að eyrum.

Veðhlaupahestur í hans eigu vann sigur á fyrsta keppnisdegi á árlegu hestamóti sem haldið er á Bretlandseyjum.

Ferguson var kampakátur eftir sigurinn og faðmaði knapann Ruby Walsh sem keppir á hesti hans. „Hestaveðhlaup er tilvalið áhugamál til að losna frá stressinu sem fylgir starfi knattspyrnustjórans. Ég er í skýjunum með þennan sigur í dag," sagði Sir Alex.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×