Erlent

Réðust til atlögu gegn eiturlyfjabaróninum Coke

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lögreglan lét til skarar skríða gegn Coke um helgina. Mynd/ AFP.
Lögreglan lét til skarar skríða gegn Coke um helgina. Mynd/ AFP.
Lögregla og herlið í Jamaíka hafa ráðist til atlögu gegn eiturlyfjabaróninum Christopher Coke í Kingston, höfuðborg Jamaíka.

Að minnsta kosti einn hermaður féll í átökunum í nótt og tveir lögreglumenn voru drepnir í gær. Fleiri hafa særst. Coke nýtur stuðnings almennra borgara í hverfinu þar sem hann býr. Fólkið þar telur að hann hann veiti því bæði vernd og peninga til að sjá fyrir börnum sínum.

Heyrst hefur af átökum víðar en í Kingston og óttast lögreglan að þau muni breiðast út víðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×