Rekinn fyrir góðverk Óli Tynes skrifar 28. janúar 2010 09:23
Breski póstburðarmaðurinn átti að baki tíu ára flekklausan feril. Hann þekkti orðið persónulega margt af því fólki sem bjó í því hverfinu þar sem hann bar út póstinn. Hann var einmitt við hús þar sem bjó veikburða eldri kona þegar komið var með ábyrgðarsendingu til hennar. Í ljós kom að hún var ekki heima. Það er snjóþungt í Bretlandi þessa dagana og götur illfærar. Pósturinn vissi að fyrst konan var ekki heima yrði hún að fara sjálf að fara á pósthúsið til þess að sækja ábyrgðarsendinguna. Til þess að spara henni þau spor kvittaði hann sjálfur fyrir sendinguna og setti hana inn um póstlúguna. Þegar gamla konan kom heim og sá póstinn sinn varð hún ákaflega glöð yfir þessari hugulsemi. Hún hringdi því á pósthúsið til þess að þakka fyrir sig. Það símtal lenti hjá yfirmanni sem varð lítt hrifin af framtaki póstsins. Það var augljóst brot á reglum hjá honum að kvitta fyrir sendinguna. Pósturinn góðhjartaði var því rekinn. Breskur þingmaður hefur nú tekið mál hans til athugunar. Þegar hann fór að kanna málið komst hann að því að á viðkomandi útibúi sem sinnir til þess að gera litlu svæði hafa fjörutíu og sex póstburðarmenn verið látnir hætta störfum undanfarin misseri. Yfirmenn pósthússins eru nú til skoðunar.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fleiri fréttir Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Sjá meira