Stjórnin heldur meirihluta 8. janúar 2010 05:45
Stjórnarflokkarnir mælast með stuðning samtals 53,2 kjósenda samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins. Vinstri græn bæta við sig rúmum fjórðungi og tveimur þingmönnum, en fylgi við Samfylkinguna dregst saman og flokkurinn myndi missa tvo þingmenn samkvæmt könnuninni. Vinstri græn mælast með 24,6 prósenta fylgi og 16 þingmenn samkvæmt könnun Fréttablaðsins. Það er stökk upp um 5,4 prósentustig frá síðustu könnun, sem gerð var í október síðastliðnum. Í kosningum fékk flokkurinn stuðning 21,7 prósenta kjósenda og er því talsvert yfir kjörfylgi. Samfylkingin fær stuðning 28,7 prósent kjósenda og 18 þingmenn kjörna samkvæmt könnun Fréttablaðsins, sem unnin var í gærkvöldi. Í síðustu könnun blaðsins naut flokkurinn fylgis 30,8 prósenta aðspurðra. Fylgi við Sjálfstæðisflokkinn lækkar umtalsvert frá síðustu könnun. Alls sagðist 31,1 prósent myndi styðja flokkinn yrði kosið nú, en 34,8 prósent sögðust styðja flokkinn í könnun í október. Litlar breytingar hafa orðið á fylgi Framsóknarflokksins. Flokkurinn mælist nú með 13,7 prósenta stuðning og níu þingmenn kjörna, en 14,1 prósents fylgi í síðustu könnun. Hreyfingin fjórfaldar fylgi sitt milli kannana, og mælist með stuðning 1,6 prósenta kjósenda nú og engan mann kjörinn, en 0,4 prósent aðspurðra sögðust styðja flokkinn í október. Breytingarnar eru þó innan skekkjumarka. Mikill munur er á stuðningi við fjóra stærstu flokkana eftir kynjum. Um 25 prósent karla styðja Samfylkinguna en tæplega 33 prósent kvenna. Hlutföllin eru öfug hjá Sjálfstæðisflokki, sem nýtur stuðnings tæplega 38 prósenta karla en 24 prósenta kvenna. Vinstri græn sækja sinn stuðning einnig umtalsvert meira til kvenna en karla. Um það bil 32 prósent kvenna sögðust styðja flokkinn en 18 prósent karla. Framsóknarflokkurinn nýtur stuðning 17 prósenta hjá körlum en 10 prósenta hjá konum.- bj
Mest lesið Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira