Enski boltinn

Arshavin tryggði Arsenal sigur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Arshavin fagnar hér sigurmarki sínu í dag.
Arshavin fagnar hér sigurmarki sínu í dag.

Arsenal sótti þrjú góð stig á Ewood Park í dag er liðið lagði Blackburn, 1-2, í skemmtilegum leik.

Hinn sjóðheiti Theo Walcott kom Arsenal yfir á 20. mínútu en Mame Biram Diouf, lánsmaður frá Man. Utd, jafnaði leikinn fyrir Blackburn sjö mínútum síðar.

Það var síðan Rússinn Andrei Arshavin sem tryggði Arsenal sigur á 51. mínútu leiksins.

Fimm leikir fara fram í enska boltanum síðar í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×