Tuttugu og tveir særðust í Istanbul Heimir Már Pétursson skrifar 31. október 2010 12:03 Sprengjan sprakk á Taksim torgi. Mynd/ afp.
Tuttugu og tveir særðust í sjálfsmorðssprengjuárás í Istanbúl, í Tyrklandi, í morgun. Sprengjan sprakk skammt frá sveit óeirðalögreglumanna sem voru í viðbragðsstöðu vegna mótmælaaðgerða. Lögreglustjórinn í Istanbúl segir að níu lögreglumenn og sex óbreyttir borgarar hafi slasast í sprengingunni, en tyrkneska fréttastofan Dogan segir að tuttugu og tveir hafi særst. Að minnsta kosti tveir þeirra eru sagðir mjög alvarlega særðir. Sprengjan sprakk á Taksim torgi. Tilræðismaðurinn er sagður vera karlmaður en engar frekari upplýsingar eru um hann. Herskáir Kúrdar og múslímar í landinu hafa gert fjölda sjálfsmorðssprengjuárásir áður, en enginn hefur lýst ábyrgð sinni á tilræðinu í morgun. Vopnahlé hefur ríkt milli stjórnvalda og Kúrda en það er við það að renna út. Vitni segja særða og jafnvel látna hafa legið á víð á dreif á vettvangi. Götum í nágrenni staðarins hefur verið lokað. Sérsveit lögreglumanna var saman kominn í borginni vegna boðaðra mótmæla. Lögreglustjórinn segir að talið sé að árásarmaðurinn hafi gert tilraun til að komast inn í rútu sérsveitarmanna og hafi ætlað að sprengja sig í loft upp þar, en sprengjan hafi sprungið áður. Kúrdar hafa barist fyrir sjálfstæði sínu í suðausturhluta landsins og mætt harðri andspyrnu stjórnvalda.
Mest lesið Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Fleiri fréttir Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Sjá meira