Neyðarlögin brjóta ekki gegn ákvæðum EES-samningsins 15. desember 2010 14:10 Alþingishúsið.
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) ákvað í dag að loka sjö kvörtunarmálum er varða íslensku neyðarlögin þar sem stofnunin telur að lögin brjóti ekki gegn ákvæðum EES-samningsins samkvæmt upplýsingum sem finna má á heimasíðu eftirlitsstofnunarinnar. Við hrun íslensku bankanna í október 2008 samþykkti Alþingi neyðarlögin sem miðuðu að því að tryggja virkni fjármálakerfisins og efla traust almennings á því. Lögin gerðu innstæður á bankareikningum að forgangskröfum við gjaldþrotaskipti banka. Innstæður nutu þar með forgangs gagnvart öðrum ótryggðum kröfum. Lögin veittu jafnframt Fjármálaeftirlitinu heimildir til að taka yfir eignir og skuldbindingar föllnu bankanna og ráðstafa þeim til nýju bankanna. Fyrir bankahrunið höfðu nokkrir erlendir bankar lánað íslenskum bönkum háar fjárhæðir. Þessir erlendu bankar kvörtuðu undan því við ESA að þeir hefðu mátt þola ólögmæta mismunun vegna ákvæða neyðarlaganna og ákvarðana Fjármálaeftirlitsins sem áhrif hefðu á úthlutun eigna til kröfuhafa úr þrotabúum bankanna. ESA hefur komist að þeirri niðurstöðu að innstæðueigendur eru í annari aðstöðu en almennir kröfuhafar og eiga tilkall til ríkari verndar við greiðsluþrot banka. Það er niðurstaða stofnunarinnar að hvorki neyðarlögin né ákvarðanir Fjármálaeftirlitsins hafi falið í sér ólögmæta mismunun gagnvart almennum kröfuhöfum. Því hafi ekki verið brotið gegn ákvæðum EES-samningsins um frjálst flæði fjármagns. Jafnframt telur stofnunin að hefði niðurstaðan orðið sú að þessar ráðstafanir hefðu verið taldar hamla frjálsu flæði fjármagns hefðu þær samt sem áður verið réttlætanlegar. "Þessi niðurstaða er mjög mikilvæg að því er varðar forsendur fyrir úthlutun eigna úr þrotabúum gömlu bankana og fyrir endurskipulagningu íslenska bankakerfisins" segir Per Sanderud, forseti ESA, á heimasíðu stofnunarinnar. Ákvörðunin um að loka málunum leysir ekki úr álitaefnum er varða tilskipun um innstæðutryggingar og mismunun á milli innstæðueigenda á Íslandi og innstæðueigenda sem áttu innstæður í útibúum íslensku bankanna í öðrum EES-ríkjum.
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Sjá meira