Tilbúinn að deyja fyrir málstaðinn 2. janúar 2010 06:00 Þúsundir streymdu á götur Teheran á miðvikudag til stuðnings ríkisstjórninni. fréttablaðið/ap
Mir Hossein Mousavi, helsti stjórnarandstöðuleiðtogi Írans, segist ekki vera hræddur við að deyja fyrir málstað sinn. Þetta sagði hann í yfirlýsingu á heimasíðu sinni, en það var í fyrsta skipti sem hann tjáði sig opinberlega síðan frændi hans var meðal þeirra sem voru drepnir í mótmælum seint í síðasta mánuði. Mousavi setti einnig fram í yfirlýsingunni fimm þrepa lausn við ástandinu sem ríkt hefur í Íran frá því eftir forsetakosningar í júní síðastliðnum. Hann segir ríkisstjórnina, þingið og dómstóla þurfa að taka ábyrgð á ástandinu. Þau þurfi líka að gera gegnsæ lög til að tryggja sanngjarnar kosningar, leysa pólitíska fanga úr haldi, viðurkenna fjölmiðlafrelsi og frelsi fólks til að mótmæla. Mousavi segir nauðsynlegt að stjórnvöld viðurkenni að alvarleg krísa ríki í landinu. Þangað til það sé gert sé ekki mögulegt að ráða fram úr vandanum. Þá segir hann að verði hann eða aðrir stjórnarandstöðuleiðtogar handteknir eða drepnir muni það ekki róa ástandið. Hann væri þó ekki hræddur við að deyja fyrir vilja fólksins. Þannig svaraði hann hótunum klerka, sem sumir hverjir hafa krafist þess að stjórnarandstöðuleiðtogar verði teknir af lífi fyrir að hlýða ekki valdstjórninni. Mousavi minntist þó ekki beint á lát frænda síns í þessu samhengi. Hann hét Seyed Ali Mousavi, og var meðal þeirra sem létu lífið þegar lögreglumenn skutu á mótmælendur sem söfnuðust saman í Teheran 27. desember. Hann var skotinn í bakið, en stjórnvöld hafa neitað því að hann hafi verið skotinn af lögreglumönnum. Líkum þeirra sem voru drepnir var haldið á spítala og þannig var komið í veg fyrir að hægt væri að jarðsetja þau strax, eins og venja er. Fjölskylda Mousavis segir lík hans hafa verið tekið án leyfis fjölskyldunnar, til þess að koma í veg fyrir að jarðarför hans yrði notuð í mótmæli. Líkinu var skilað í vikunni gegn því að fjölskyldan héldi jarðarförina í kyrrþey. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Fleiri fréttir Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Sjá meira