Enski boltinn

Óánægja í herbúðum City?

Elvar Geir Magnússon skrifar
Roberto Mancini.
Roberto Mancini.

Enskir fjölmiðlar segja frá því í morgun að Roberto Mancini sé í baráttu um að vinna sér inn virðingu hjá leikmönnum Manchester City.

Í síðustu viku bárust fréttir þess efnis að Mancini hafi lent í rifrildi við sóknarmanninn Craig Bellamy.

Mail on Sunday greinir svo frá því að fjölmargir menn innan leikmannahópsins séu óánægðir með æfingar ítalska stjórans.

Æfingarnar eru víst í lengra lagi og tímasetningar þeirra ekki hentugar. Samkvæmt frétt enska blaðsins vilja leikmenn meina að Mancini átti sig ekki alveg á aðstæðum enda þekkir hann ekki vel til enska boltans þar sem hann er á sínu fyrsta tímabili í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×