Guðríður: Engar ófrávíkjanlegar kröfur 2. júní 2010 09:49 Guðríður Arnardóttir.
Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, segir flokkinn ekki setja neinar ófrávíkjanlegar kröfur í meirihlutaviðræðunum í bæjarfélaginu. Hún segir að Listi Kópavogsbúa hafi gerst sekur um trúnaðarbrest. Í gær bárust þær fregnir að snurða hefði hlaupið á þráðinn í viðræðum á milli Samfylkingar, VG, Næstbesta flokksins og Lista Kópavogsbúa. Ásdís Ólafsdóttir, sem skipaði heiðursæti á Lista Kópavogsbúa og er fyrrverandi varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sagði í samtali við Vísi í gærkvöldi að Samfylkingin gerði þá kröfu að Guðríður yrði bæjarstjóri og á það gæti Lista Kópavogsbúa ekki fallist. „Mér finnst það ekki til heilla að ræða þetta mál í fjölmiðlum. Það er betra að gera það á fundum og það er annar fundur í dag. Frá okkar bæjardyrum séð er ekkert mál útrætt," segir Guðríður og bætir við að Listi Kópavogsbúa hafi gerst sekur um trúnaðarbrest. „Þegar fólk situr og er að semja er farsælast að það sé gert fyrir luktum dyrum." Guðríður segir að fundurinn í gær hafi verið góður og að hennar nafn hafi ekki verið rætt í sambandi við bæjarstjórastólinn. Þá gagnrýnir hún yfirlýsingar Ásdísar á Vísi í gærkvöldi. „Í fyrsta lagi var fylgistap Samfylkingarinnar ekki það sama og sameiginlegt tap Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Við töpuðum þremur prósentum. Í öðru lagi kom mitt nafn ekkert upp í þessari umræðu í gær." Sjálfstæðisflokkurinn tapaði rúmlega 14% í kosningunum á laugardaginn og Framsóknarflokkurinn tæplega 5%.
Tengdar fréttir Oddviti Samfylkingar: „Ég er mjög bjartsýn“ „Það hafa ekki komið upp nein ágreiningsmál enn þá," segir Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi í samtali við Vísi.is. Viðræður milli Samfylkingar, Næst besta flokknum, Lista Kópavogsbúa og Vinstri grænna munu halda áfram í dag um hugsanlegt meirihlutasamstarf. Það yrði í fyrsta skiptið í tuttugu ár sem Sjálfstæðisflokkur og Framsókn fara ekki með völd í bænum, ef flokkarnir ná að mynda meirihluta. 31. maí 2010 11:09 Meirihlutaviðræður langt komnar í Kópavogi Meirihlutaviðræður Samfylkingar, Vinstri grænna, lista Kópavogsbúa og Næsta besta flokksins í Kópavogi eru langt á veg komnar. Fulltrúar flokkanna funduðu í gær og búist er við áframhaldandi fundarhöldum í dag. 1. júní 2010 12:03 Vongóður um að meirihlutasamstarf náist í Kópavogi Viðræðum á milli Næst besta flokksins í Kópavogi, Lista kópavogsbúa, Samfylkingarinnar og Vinstri grænna er lokið en fyrirhugað er að halda annan fund í kvöld. 30. maí 2010 18:04 Meirihlutaviðræður í Kópavogi ganga vel Meirihlutaviðræður í Kópavogi ganga vel að sögn oddvita Vinstri grænna. Engar ákvarðanir hafa verið teknar varðandi bæjarstjórastólinn. 31. maí 2010 13:17 Y-listinn: Getum ekki samþykkt Guðríði sem bæjarstjóra „Guðríður vill verða bæjarstjóri, og það viljum við alls ekki," segir Ásdís Ólafsdóttir, Y-lista Kópavogsbúa. Eins og hefur komið fram hafa Samfylkingin, Vinstri grænir, Næst besti flokkurinn og Y-listi Kópavogsbúa, fundað síðustu daga um myndun meirihluta í Kópavogi. Flokkarnir hættu að funda klukkan fimm í dag og segir Ásdís að ekki náist samkomulag um hver fær bæjarstjórastólinn. 1. júní 2010 22:27 Kópavogur: Fullur vilji til að ljúka meirihlutamyndun Fulltrúar S,V,Y og X lista í Kópavogi segja í yfirlýsingu sem send var út í nótt að þeir standi sameiginlega að meirihlutaviðræðum í bænum og að talsmenn framboðanna hafi fullan vilja til að ljúka því verkefni. Í gær bárust þær fregnir að snurða hefði hlaupið á þráðinn í viðræðum á milli Samfylkingar, VG, Næstbesta flokksins og Y - lista Kópavogsbúa. 2. júní 2010 06:30 Meirihlutaviðræður hafnar í Kópavogi Meirihlutaviðræður í Kópavogi eru þegar hafnar án aðkomu framsóknarmanna og Sjálfstæðisflokks. Oddvitar Samfylkingarinnar og Næst besta flokksins segja nauðsynlegt að gefa Sjálfstæðisflokknum frí frá bæjarstjórn. 30. maí 2010 12:32 Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Veður Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Innlent Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Innlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Innlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Fleiri fréttir Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Sjá meira
Oddviti Samfylkingar: „Ég er mjög bjartsýn“ „Það hafa ekki komið upp nein ágreiningsmál enn þá," segir Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi í samtali við Vísi.is. Viðræður milli Samfylkingar, Næst besta flokknum, Lista Kópavogsbúa og Vinstri grænna munu halda áfram í dag um hugsanlegt meirihlutasamstarf. Það yrði í fyrsta skiptið í tuttugu ár sem Sjálfstæðisflokkur og Framsókn fara ekki með völd í bænum, ef flokkarnir ná að mynda meirihluta. 31. maí 2010 11:09
Meirihlutaviðræður langt komnar í Kópavogi Meirihlutaviðræður Samfylkingar, Vinstri grænna, lista Kópavogsbúa og Næsta besta flokksins í Kópavogi eru langt á veg komnar. Fulltrúar flokkanna funduðu í gær og búist er við áframhaldandi fundarhöldum í dag. 1. júní 2010 12:03
Vongóður um að meirihlutasamstarf náist í Kópavogi Viðræðum á milli Næst besta flokksins í Kópavogi, Lista kópavogsbúa, Samfylkingarinnar og Vinstri grænna er lokið en fyrirhugað er að halda annan fund í kvöld. 30. maí 2010 18:04
Meirihlutaviðræður í Kópavogi ganga vel Meirihlutaviðræður í Kópavogi ganga vel að sögn oddvita Vinstri grænna. Engar ákvarðanir hafa verið teknar varðandi bæjarstjórastólinn. 31. maí 2010 13:17
Y-listinn: Getum ekki samþykkt Guðríði sem bæjarstjóra „Guðríður vill verða bæjarstjóri, og það viljum við alls ekki," segir Ásdís Ólafsdóttir, Y-lista Kópavogsbúa. Eins og hefur komið fram hafa Samfylkingin, Vinstri grænir, Næst besti flokkurinn og Y-listi Kópavogsbúa, fundað síðustu daga um myndun meirihluta í Kópavogi. Flokkarnir hættu að funda klukkan fimm í dag og segir Ásdís að ekki náist samkomulag um hver fær bæjarstjórastólinn. 1. júní 2010 22:27
Kópavogur: Fullur vilji til að ljúka meirihlutamyndun Fulltrúar S,V,Y og X lista í Kópavogi segja í yfirlýsingu sem send var út í nótt að þeir standi sameiginlega að meirihlutaviðræðum í bænum og að talsmenn framboðanna hafi fullan vilja til að ljúka því verkefni. Í gær bárust þær fregnir að snurða hefði hlaupið á þráðinn í viðræðum á milli Samfylkingar, VG, Næstbesta flokksins og Y - lista Kópavogsbúa. 2. júní 2010 06:30
Meirihlutaviðræður hafnar í Kópavogi Meirihlutaviðræður í Kópavogi eru þegar hafnar án aðkomu framsóknarmanna og Sjálfstæðisflokks. Oddvitar Samfylkingarinnar og Næst besta flokksins segja nauðsynlegt að gefa Sjálfstæðisflokknum frí frá bæjarstjórn. 30. maí 2010 12:32