Enski boltinn

Aaron Lennon farinn að æfa á ný

Elvar Geir Magnússon skrifar
Aaron Lennon.
Aaron Lennon.

Aaron Lennon, vængmaður enska landsliðsins, hefur snúið aftur til æfinga hjá Tottenham. Lennon hefur ekki spilað vegna meiðsla síðan í desember og misst af síðustu nítján leikjum liðsins.

Harry Redknapp, stjóri Tottenham, segir frábært að sjá Lennon aftur á æfingum en hann þurfi að fá tíma. Það verði ekki tekin nein áhætta með að kasta honum of snemma í djúpu laugina á ný.

Lennon er í kapphlaupi við tímann til að koma til greina í enska landsliðshópinn fyrir HM í Suður-Afríku í sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×