Fólk enn sagt á lífi í húsarústum á Haítí 18. janúar 2010 01:00 Hjálparstarfsmenn róta í húsarústunum á Haítí eftir jarðskjálftann sem gekk yfir landið.ap/mynd
Yfir sjötíu manns hefur verið bjargað úr húsarústunum á Haítí eftir jarðskjálftann sem gekk yfir landið á dögunum. Að sögn talsmanns Sameinuðu þjóðanna. Elisabeth Byrs, er hlutfall þeirra sem hefur verið bjargað hátt miðað við hefðbundna björgunaraðgerð á vegum samtakanna, jafnvel þótt fjöldinn sé ekki mikill miðað við alvarleika slyssins. Að sögn Elisabeth er andinn góður á meðal hinna 1.739 björgunarstarfsmanna sem hafa leitað í rústunum undanfarna daga. Fólk er ennþá á lífi í byggingunum sem hrundu en reiknað er með því að það geti lifað í sex daga við slíkar aðstæður og sá tími rennur einmitt út í dag. Alls eru 43 björgunarlið á svæðinu með 161 hund og hátæknibúnað sér til aðstoðar við leitina og enn fleira fólk er væntanlegt til aðstoðar. Björgunarstarfsmenn hafa kvartað yfir því hversu erfitt hefur verið að koma hjálpargögnum í gegnum flugvöllinn í höfuðborginni Port-Au-Prince, sem er bæði lítill og illa farinn. Til að mynda var samtökunum Læknar án landamæra meinað um leyfi til að lenda á vellinum. Þess í stað þurftu þau að lenda í Dóminíska lýðveldinu og tafðist uppsetning sjúkramiðstöðvar á þeirra vegum því um einn sólahring. Ekki er vitað hversu margir hafa farist í jarðskjálftanum. Tuttugu þúsund lík hafa þegar fundist í landinu. Heilbrigðissamtökin Pan American telja að á bilinu 50 til 100 þúsund manns hafi dáið. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Erlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Fleiri fréttir Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Sjá meira