FH og Breiðablik rífast um greiðslur vegna Gylfa Arnar Björnsson skrifar 22. nóvember 2010 17:03
FH vill fá rúmlega þriðjungshlut af rúmlega 100 milljóna króna greiðslu sem Breiðablik fékk þegar Gylfi Þór Sigurðsson var seldur frá Reading til þýska liðsins Hoffenheim. Málið er komið inná borð félagaskiptanefndar Knattspyrnusambands Íslands. Þar er beðið eftir gögnum frá enska knattspyrnusambandinu. Gylfi Þór Sigurðsson lék með FH og síðar Breiðabliki áður en hann gékk í raðir enska liðsins Reading fyrir 5 árum. Í haust seldi Reading Gylfa til þýska félagsins Hoffenheim sem borgaði 5,7 milljónir punda fyrir Íslendinginn unga eða rúman milljarð króna á gengi dagsins í dag. 5 prósent af þeirri upphæð eru uppeldisbætur sem skiptast milli Reading, Breiðabliks og FH. Engar deilur eru um þá skiptingu, þar fær Reading mest enda var Gylfi í 5 ár á mála hjá enska liðinu. En ágreiningur er um hvernig skipta eigi 10 prósentum af sölunni, um 103 milljónum íslenskra króna. Breiðablik gerði samning við Reading þegar Gylfi fór til Englands og í þeim samningi var ákvæði um að Kópavogsliðið fengi 10 prósent af næstu sölu Gylfa. FH-ingar hafa óskað eftir því að fá að sjá samninginn sem Breiðablik gerði við Reading. Jón Rúnar Halldórsson, formaður knattspyrnudeildar FH, segist vilja vita hvort hagsmunum FH-inga í þeim samningi hafi verið kastað fyrir róða, eins og hann orðaði það í samtali við Stöð 2. Hann segir að FH vilji fá 36,2 prósent af upphæðinni sem jafngildir rúmum 37 milljónum króna. Jón Rúnar segir að mörg knattspyrnufélög semji sig frá uppeldisbótum og þess vegna vilja FH-ingar fá að sjá samninginn sem Breiðablik gerði við Reading. Einar Kristján Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks, segir að krafa FH sé byggð á misskilningi. Breiðablik hefur þegar fengið greiðslur vegna sölunnar. Fjárhagsstaða nýkrýndra Íslandsmeistara hefur gjörbreyst á nokkrum mánuðum, Einar Kristján vildi ekki gefa upp hve skuldir félagsins voru en hann segir knattspyrnudeildina núna skuldlausa. Næsta haust fær Breiðablik um 50 milljónir króna frá Knattspyrnusambandi Evrópu, fyrir Íslandsmeistaratitilinn og upp í ferðakostnað vegna Evrópukeppninnar á næstu leiktíð.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Reyna að hefja leik á U.S. Open á ný Golf Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Fótbolti Lengri útsending frá Gunnlaugi á U.S. Open Golf Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós Fótbolti Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Fótbolti Feginn að hafa ekki fengið áframhaldandi samning Sport Völlurinn of erfiður á síðustu tveim risamótum Golf Þurfa að breyta reglum til að stytta högg kylfinga Golf Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Fótbolti Spila æfingarleik á meðan HM stendur Fótbolti Fleiri fréttir Gleði og gott veður á TM mótinu í Eyjum ÍR stöðvaði Gróttu og Kári kom Fylki í annað sæti Bjó til sex mörk Fram á gamla heimavellinum Sjáðu mörkin í Víkinni, sturlunina í Garðabæ og Viktor tækla Val Stjarnan - Breiðablik 4-4 | Átta marka tryllir í Garðabænum Uppgjörið: Víkingur - KR 2-0 | Víkingar enn ósigraðir á toppnum Uppgjörið: 1-0 ÍA - Valur | Viktor skoraði markið sem færði Skaganum þrjú stig „Hvernig sem úrslitin lenda þá skilgreinir það ekki sumarið“ Svona verður útsending Sýnar Sport í kringum stórleiki kvöldsins Sjáðu Fram sækja sigur í sjö marka leik gegn KA Gylfi gerði nýjan samning við Víking „Aðstæðurnar eru erfiðar og þetta tekur á“ Ætlar ekki að leggjast niður fyrir Víkinga og fara að grenja Uppgjörið: KA - Fram 3-4 | Mörkunum rigndi á Akureyri í sigri Fram Lét óánægju sína í ljós: „Dæmir af okkur fullkomlega löglegt mark“ Mark dæmt af KA eftir að Framari braut á Framara Lykilmaður KR skall út í vegg og brotnaði á báðum höndum Fóru yfir helstu vonbrigðin á tímabilinu Yfirlýsing Fylkis: Biðjast afsökunar og lofa að taka hart á málinu Unnusta leikmanns fyrir aðkasti í verslun eftir leik í Árbæ „Eitthvað þarf að breytast fyrir næsta leik“ „Smá þolinmæði sem þarf“ „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ „Búnar að vera svolítið litlar og linar“ „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ HK-konur tvöfölduðu markaskor sumarsins í stórsigri á Stólunum Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu Á sársaukafullar minningar af HM Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Sjá meira