Innlent

Loðnuveiðimenn bíða enn

Að minnsta kosti fjögur skip norpa yfir loðnunni við Eyjar. Mynd/ gísli óskarsson
Að minnsta kosti fjögur skip norpa yfir loðnunni við Eyjar. Mynd/ gísli óskarsson

Svo virðist sem loðnan hafi lónað lengra til vesturs frá því í gær. Nú lóðar á loðnutorfur rétt austan við Eyjar. Gísli Óskarsson, fréttaritari í Vestmannaeyjum, hefur það eftir sjómönnum að flestar torfurnar séu á bili sem nær frá Bjarnarey austur í Háfadýpi.

Þá er hrognafyllingin ekki enn orðin það mikil að hrognataka hefjist fyrir Japansmarkað. Þó bárust fregnir um það að tveir bátar hafi kastað á torfur í morgun skammt frá Holtsósi undan Eyjafjöllum. Annars reikna menn helst með því að hrognatakan hefjist um helgina eða fljótlega eftir helgi.

Allavega er talað um það að þeir sem allt eiga sitt undir loðnunni séu farnir að klæja verulega í fingurna eftir að geta hafist handa.

Þessa stundina eru að minnsta kosti fjögur skip sem norpa yfir loðnunni. Þeirra á meðal er Vilhelm Þorsteinsson, Aðalsteinn Jónsson og Sighvatur Bjarnason VE.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×