Vespurnar loksins heiðraðar Óli Tynes skrifar 11. mars 2010 15:21 Vespurnar í Washington í gær. Mynd/AP
Yfir 1100 konur voru í gær sæmdar Gullorðu bandaríska þingsins fyrir framlag sitt sem herflugmenn/konur í síðari heimsstyrjöldinni. Talið er að um 300 þessara kvenna séu enn á lífi og 170 þeirra mættu í þinghúsið í gær til þess að taka við orðunni. Þær tilheyrðu deild í flughernum sem hét Women Airforce Service Pilots. Skammstöfunin var WASP's eða Vespurnar. Vespurnar flugu ekki í orrustum en þær reynsluflugu nýjum flugvélum jafnóðum og þær runnu af færibandinu. Auk þess flugu þær vélum til herstöðva þar sem átti að nota þær, bæði í Bandaríkjunum og Evrópu. Þetta voru bæði hraðskreiðustu orrustuflugvélar og stærstu sprengjuflugvélar og allt þar á milli. Þetta gerði kleift að senda fleiri karlmenn á vígvöllinn. Flugherinn var mikið karlaveldi á stríðsárunum og margir voru ákaflega á móti Vespunum. Framkoman í þeirra garð var í samræmi við það. Þótt þær bæru einkennisbúninga og byggju í herstöðvum nutu þær ekki sömu réttinda og karlmenn. Þær fengu til dæmis ekki greitt úr eftirlaunasjóði hermanna fyrr en 1977. Þær urðu sjálfar að greiða fyrir flugnám sitt og eins fyrir fæði og húsnæði meðan þær gegndu „herþjónustu" Þær þurftu jafnvel að safna sjálfar fé til þess að borga útfarir þeirra kvenna sem fórust með flugvélum sínum. Það eina sem hélt þeim gangandi var þráin að þjóna þjóð sinni á ögurstundu.
Mest lesið Upplifir að þau hafi verið leidd í gildru Innlent „Alvarlegasta árásin gegn dönskum innviðum til þessa“ Erlent Harmsaga fjölskyldunnar ekkert einsdæmi Innlent Stefnir í lokað þinghald að beiðni mæðgnanna Innlent Hrædd um að brennuvargur gangi laus í bænum Innlent Fóru með fleipur um einhverfu og bóluefni Erlent Errol Musk sakaður um að misnota börn sín Erlent Gagnrýndi allt og alla í langri og slitróttri ræðu Erlent „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ Viðskipti innlent Bein útsending: Trump ávarpar allsherjarþingið Erlent Fleiri fréttir Ryan Routh sekur um að reyna að myrða Trump Gagnrýndi allt og alla í langri og slitróttri ræðu Errol Musk sakaður um að misnota börn sín Bein útsending: Trump ávarpar allsherjarþingið Hefðu getað sett símkerfi New York á hliðina Fóru með fleipur um einhverfu og bóluefni Duterte ákærður fyrir glæpi gegn mannkyninu Íbúar í Kína og Hong Kong búa sig undir Ragasa „Alvarlegasta árásin gegn dönskum innviðum til þessa“ Frakkar viðurkenna Palestínu en Ísrael fordæmir „pólitískan sirkús“ Opna í Kaupmannahöfn en loka loftrýminu yfir Osló einnig vegna dróna Hertogaynjan fær reisupassann vegna tölvupósts til Epstein Kastrup lokað vegna drónaflugs Jimmy Kimmel snýr aftur á skjáinn Ætla að tengja paracetamol við einhverfu Segir Pólverja ekki muna hika við að skjóta „hluti“ niður Byrjaðir að kenna hvor öðrum um stöðvun ríkisreksturs Til í viðræður en mun aldrei láta kjarnorkuvopnin af hendi „Ég hata andstæðing minn, fyrirgefðu Erika“ Í fyrsta sinn fleiri börn með offitu en í undirþyngd Ofurfellibylurinn Ragasa nálgast Filippseyjar Bilun hjá fjarskiptafyrirtæki sögð hafa valdið fjórum dauðsföllum Herþotur sendar á loft vegna rússneskrar eftirlitsflugvélar Fyrirgefur morðingjanum Bein útsending: Minningarathöfn Charlie Kirk Kanada, Bretland og Ástralía viðurkenna Palestínu Trump og Vance ávarpa minningarathöfn Charlie Kirk Búast við því að Bretar viðurkenni sjálfstæði Palestínu í dag Þrjátíu handteknir í óeirðum í Hollandi Vill mikilvæga herstöð aftur og hótar Afgönum öllu illu Sjá meira