Jóhanna lætur kanna hæfi Bjarnveigar vegna ummæla Þorbjörn Þórðarson skrifar 10. ágúst 2010 18:30
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hyggst kanna meint vanhæfi Bjarnveigar Eiríksdóttur til setu í nefnd sem meta á lögmæti kaupa Magma Energy á eignarhlutum í HS Orku. Bjarnveig lýsti skoðun sinni á kaupunum í fjölmiðlum nokkrum vikum áður en hún var skipuð í nefndina. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, ákvað að staðfesta ekki skipun dr. Sveins Margeirssonar, verkfræðings, í nefnd sem kanna á lögmæti kaupa Magma Energy í HS Orku á þeirri forsendu að hann væri mægður Unni G. Kristjánsdóttur, formanni nefndar um erlenda fjárfestingu, en Sveinn er systursonur eiginmanns Unnar. Það var Unnur sjálf sem vakti athygli forsætisráðuneytisins á þessu og jafnframt því að hann hefði í áheyrn annarra hvatt Unni til að staðfesta ekki kaup Magma í nefnd um erlenda fjárfestingu. Forsætisráðherra ákvað þvi að staðfesta ekki skipun Sveins, en annar nefndarmaður Bjarnveig Eiríksdóttir, lýsti einnig skoðun sinni á kaupunum í fréttum Rúv hinn 13. júlí þar sem hún sagðist ekki geta séð hvaða reglu væri verið að brjóta með því að leyfa Magma að kaupa hlut í íslensku fyrirtæki. Kom ekki til skoðunar að endurskoða hæfi þessa nefndarmanns, Bjarnveigar? „Ég tel nú ekki að um sambærilega hluti sé að ræða, en engu að síður bað ég sama stjórnsýslufræðing (Trausta Fannar Valsson, lektor innsk. blm) og skoðaði mál Sveins að skoða mál Bjarnveigar líka," segir Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra. Aðspurð hvers vegna vensl Sveins við Unni G. Kristjánsdóttur skipti máli, en það var Unnur sem lét vita af venslunum með tölvupósti, segir forsætisráðherra:„Það er alveg ljóst að þegar ráðuneytið fær fréttir, hvaðan sem þær koma, um hugsanlegar vanhæfisástæður sem þurfi að skoða, í þessu tilviki voru það vensl eins og þú nefnir. Í öðru tilviki, ekki síður, hafði viðkomandi maður (Sveinn Margeirsson innsk. blm) tjáð sig og sett fram sína skoðun um hver niðurstaðan átti að vera í Magma-málinu áður en nefnd um erlenda fjárfestingu lauk störfum. Við höfum ákveðnar skyldum í þessu ráðuneyti að fara yfir þetta mál og til þess fengum við stjórnsýslufræðing að skoða málið og hann komst að þessari niðurstöðu. Ég taldi það því rétt og eðlilegt að staðfesta ekki veru hans í þessari nefnd."
Mest lesið Mörg hundruð minkar sluppu úr búrum sínum Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Erlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Innlent Allt að sautján stigum og mildast á Suður- og Vesturlandi Veður Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Innlent Mjólkurhvít mengun í Sauðá Innlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Fleiri fréttir Mörg hundruð minkar sluppu úr búrum sínum „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Sjá meira