Innlent

Jóhanna lætur kanna hæfi Bjarnveigar vegna ummæla

Þorbjörn Þórðarson skrifar

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hyggst kanna meint vanhæfi Bjarnveigar Eiríksdóttur til setu í nefnd sem meta á lögmæti kaupa Magma Energy á eignarhlutum í HS Orku. Bjarnveig lýsti skoðun sinni á kaupunum í fjölmiðlum nokkrum vikum áður en hún var skipuð í nefndina.

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, ákvað að staðfesta ekki skipun dr. Sveins Margeirssonar, verkfræðings, í nefnd sem kanna á lögmæti kaupa Magma Energy í HS Orku á þeirri forsendu að hann væri mægður Unni G. Kristjánsdóttur, formanni nefndar um erlenda fjárfestingu, en Sveinn er systursonur eiginmanns Unnar. Það var Unnur sjálf sem vakti athygli forsætisráðuneytisins á þessu og jafnframt því að hann hefði í áheyrn annarra hvatt Unni til að staðfesta ekki kaup Magma í nefnd um erlenda fjárfestingu.

Forsætisráðherra ákvað þvi að staðfesta ekki skipun Sveins, en annar nefndarmaður Bjarnveig Eiríksdóttir, lýsti einnig skoðun sinni á kaupunum í fréttum Rúv hinn 13. júlí þar sem hún sagðist ekki geta séð hvaða reglu væri verið að brjóta með því að leyfa Magma að kaupa hlut í íslensku fyrirtæki.

Kom ekki til skoðunar að endurskoða hæfi þessa nefndarmanns, Bjarnveigar? „Ég tel nú ekki að um sambærilega hluti sé að ræða, en engu að síður bað ég sama stjórnsýslufræðing (Trausta Fannar Valsson, lektor innsk. blm) og skoðaði mál Sveins að skoða mál Bjarnveigar líka," segir Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra.

Aðspurð hvers vegna vensl Sveins við Unni G. Kristjánsdóttur skipti máli, en það var Unnur sem lét vita af venslunum með tölvupósti, segir forsætisráðherra:„Það er alveg ljóst að þegar ráðuneytið fær fréttir, hvaðan sem þær koma, um hugsanlegar vanhæfisástæður sem þurfi að skoða, í þessu tilviki voru það vensl eins og þú nefnir. Í öðru tilviki, ekki síður, hafði viðkomandi maður (Sveinn Margeirsson innsk. blm) tjáð sig og sett fram sína skoðun um hver niðurstaðan átti að vera í Magma-málinu áður en nefnd um erlenda fjárfestingu lauk störfum. Við höfum ákveðnar skyldum í þessu ráðuneyti að fara yfir þetta mál og til þess fengum við stjórnsýslufræðing að skoða málið og hann komst að þessari niðurstöðu. Ég taldi það því rétt og eðlilegt að staðfesta ekki veru hans í þessari nefnd."










Fleiri fréttir

Sjá meira


×