Innlent

Ný gossprunga opnaðist á Fimmvörðuhálsi - myndir

Nýja sprungan.
Nýja sprungan. MYND/Óskar Friðriksson

Ný sprunga hefur opnast á Fimmvörðuhálsi. Nýja sprungan er norðvestan við gömlu sprunguna og teygir hún sig í átt að fjallinu sem áður hafði myndast. Sjö nýir gígar gjósa nú og eru tveir þeirra kraftmeiri en hinir að sögn Gísla Óskarssonar fréttaritara Stöðvar 2 sem staddur er á Fimmvörðuhálsi. Sprungan er um 300 metrar að lengd við fyrstu sýn.















MYND/Óskar Friðriksson

Björgunarsveitarmenn eru á staðnum og hefur fólki verið vísað af svæðinu í varúðarskyni. Ekki þarf að rýma Þórsmörk eða Goðaland að svo stöddu.

Á meðfylgjandi myndum sem Óskar Friðriksson tók sést nýja sprungan greinilega.

Á vefmyndavél Mílu sést nýja sprungan greinilega hana má skoða hér eða á forsíðu Vísis.












Tengdar fréttir

Mælar Veðurstofunnar sýna engin merki um nýja sprungu

Á mælum Veðurstofunnar er ekki hægt að sjá að ný sprunga hafi opnast á Fimmvörðuhálsi eins og raunin er. Að sögn jarðfræðings á vakt eru engin merki um aukinn óróa og engir jarðskjálftar hafa komið fram á mælum.

Aukin viðbúnaður vegna nýju sprungunnar

Aukin mönnun er í Samhæfingarstöð vegna óvissunnar á Fimmvörðuhálsi en þar opnaðist ný sprunga um klukkan sjö. Í samhæfingarmiðstöðinni eru nú um 12 manns að störfum. Aðgerðastjórn á Hellu hefur einnig verið boðuð til starfa.

Fólk í Básum heldur kyrru fyrir þar

Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli hefur öllu ferðafólki verið komið niður af Fimmvörðuhálsi. Veginum inn í Þórsmörk hefur verið lokað en fólk sem statt er inni í Básum mun halda kyrru fyrir þar. Þar er nokkur fjöldi fólks en lögregla hefur ekki nákvæma tölu á fjöldanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×