Giggs: Er farinn að sjá svolítinn Cristiano Ronaldo í Nani Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. október 2010 13:30 Ryan Giggs og Nani. Mynd/Nordic Photos/Getty
Ryan Giggs hefur trú á því að Nani sé farinn að nálgast Cristiano Ronaldo og sér enga fyrirstöðu fyrir því að hann geti orðið einn af bestu leikmönnum í heimi. Nani hefur spilað vel með Manchester United á tímabilinu og skoraði tvö mörk í sigri Portúgala á Dönum á föstudagskvöldið. Næsti leikur hans er síðan á Laugardalsvellinum á þriðjudagskvöldið. „Ég tel að Nani sé tilbúinn að fara upp á næsta getustig. Hann hefur alltaf verið leikmaður sem hefur getað unnið leiki en þarf að fara að ná meiri stöðugleika í sínum leik," sagði Ryan Giggs í viðtali við The People. „Hann er þegar búinn að búa til sjö eða átta mörk og skorað nokkur sjálfur en hann getur gert enn betur," sagði Giggs. „Nani er farinn að skila hlutum til liðsins sem okkur hefur vantað síðan Cristiano Ronaldo fór frá okkur. Hann er farinn að fylla betur í skarðið sem Ronaldo skildi eftir sig. Þessi mörk af löngu færi og einleiksmörk eins og Nani skoraði á móti Bolton sýna hvað hann getur gert," segir Giggs. „Nani þarf bara að fara skora fleiri mörk. Hann þarf að skora 20 mörk og búa til 20 önnur mörk á hverju tímabili. Hann getur það alveg og það er ekki heldur hægt að ætlast til meira af vængmanni," sagði Giggs.
Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Formúla 1 Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Sport Meiddist í Portúgal Enski boltinn Gylfi með til Eistlands Fótbolti Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur Sjá meira