Helga Sigríður fékk í raun kransæðastíflu 29. nóvember 2010 20:49 „
Þegar ég kom að henni lá hún köld á gólfinu," lýsti móðir Helgu Sigríðar Sigurðardóttir, María Egilsdóttir, þegar hún kom að dóttur sinni eftir að hún hné niður. María var í viðtali í Íslandi í dag í kvöld. Helga Sigríður, sem er Tólf ára gömul stúlka frá Akureyri, hneig niður á miðvikudaginn í skólanum og er komin til Svíþjóðar þar sem hún fær hugsanlega nýtt hjarta. Áður var hún í hjarta og lungnavél á gjörgæsludeild Landspítalans þar sem hún barðist fyrir lífi sínu. Samkvæmt lækni sem rætt var við í Íslandi í dag þá fékk Helga Sigríður í raun kransæðastíflu en veikindi hennar flokkast í raun ekki sem hjartagalli. „Það er mjög óvanalegt að fá svona unga manneskju með kransæðastíflu," sagði hann í viðtalinu í Íslandi í dag. Móðir Helgu segist endalaust þakklát heilbrigðistarfsfólkinu hér á landi. „Það var allt gert rétt, allt gekk upp og það er ótrúlega fært fólk sem kom að þessu. Maður er stoltur af íslenska heilbrigðiskerfinu," sagði María um vinnubrögð heilbrigðisstarfsfólksins sem hefur komið að aðhlynningu dóttur hennar. Núna eru þær mæðgur í Svíþjóð og bíða í von og ótta hvað gerist á næstu vikum og mánuðum. „Maður þorir varla að sofna en það er lítið annað hægt en að bíða," sagði María í símaviðtali frá Svíþjóð. Hún segist þakklát því að dóttir hennar virðist ekki vera heilasködduð. En baráttunni er langt því frá lokið. „Þetta er rússibanareið. Við erum glöð eina stundina og grátum þá næstu," sagði María þegar hún lýsti erfiðri upplifun sinni og fjölskyldunnar. Hún segist vongóð um að dóttir hennar nái bata en það er þó ómögulegt að segja nokkuð til um það. Ekki er ljóst hvort hún fær nýtt líffæri. Hægt er að skoða viðtalið í viðhengi hér fyrir ofan.
Mest lesið Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Sjá meira