Fjölmargir orðaðir við Arsenal - Chamakh á leiðinni? Elvar Geir Magnússon skrifar 18. apríl 2010 11:45 Chamakh til Arsenal?
Arsenal einokar nánast ensku slúðurblöðin eftir að Arsene Wenger gaf til kynna að hann ætlaði að opna veskið í sumar. Wenger hefur gefið til kynna að Marouane Chamakh, sóknarmaður franska liðsins Bordeaux, gæti verið á leiðinni á Emirates. Chamakh er 26 ára Marokkómaður sem skorað hefur 15 mörk í vetur. The Sunday Mirror segir að Arsenal sé að íhuga að leggja fram 8 milljón punda tilboð í markvörðinn Joe Hart hjá Manchester City. Hart hefur verið einn besti markvörður deildarinnar í vetur en hann hefur leikið á lánssamningi hjá Birmingham sem vill halda honum innan sinna raða. Blaðið segir að Arsenal hyggist styrkja öftustu línu liðsins og Gary Cahill hjá Bolton sé á óskalistanum ásamt Simon Kjaer hjá Palermo. James Milner hefur átt magnað tímabil hjá Aston Villa og er einnig orðaður við Arsenal. Nokkuð óvænt er síðan miðjumaðurinn Kevin Nolan hjá Newcastle orðaður við liðið. Nolan hefur átt frábært tímabil með Newcastle í ensku 1. deildinni en er 28 ára, talsvert eldri en þeir leikmenn sem Wenger er vanur að kaupa. Þá kemur fram í enskum fjölmiðlum að Wenger sé tilbúinn að skoða tilboð í varnarmanninn Gael Clichy sem hefur m.a. verið orðaður við Barcelona. Wenger telur að Kieran Gibbs sé tilbúinn að leysa stöðu hans.
Enski boltinn Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Sjá meira