Rooney sá eini sem hefði komist í liðið 1966 Elvar Geir Magnússon skrifar 2. apríl 2010 21:00 Wayne Rooney.
Sir Geoff Hurst telur að Wayne Rooney sé eini meðlimur enska landsliðsins sem er nægilega góður til að hafa komist í liðið sem vann heimsmeistaramótið 1966. Hurst er sá eini sem skorað hefur þrennu í úrslitaleik heimsmeistaramóts. „Wayne er klárlega einn af tveimur eða þremur bestu leikmönnum heims," sagði Hurst. „Hann er magnaður leikmaður sem hefur þróast svakalega síðustu tímabil. Hann er núna jafn ógnandi hvort sem hann er einn í fremstu víglínu eða með einhverjum öðrum. Það besta við hann er að hann getur spilað allstaðar." „Margir leikmenn sem spila í dag hefðu ekki getað spilað leikinn eins og hann var þegar ég var að spila. Rooney hefði getað spilað í fremstu röð á hvaða tíma sem er. Hann er stórkostlegur leikmaður," sagði Hurst. „Hann ólst upp sparkandi bolta í veggi. Hann er með frábæra tækni, í svakalegu formi og gríðarlega sterkur. Hann er líklega eini leikmaðurinn í dag sem hefði komist í sigurliðið okkar frá ´66. Hann væri þó ekki á undan mér í liðið," sagði Hurst kíminn. „Ég hefði elskað það að fá að spila við hlið Wayne, við hefðum samsvarað hvor öðrum frábærlega þó hann sé betri leikmaður en ég var. Ég var aldrei heimsklassa leikmaður en hjá West Ham lærði ég að spila kringum heimsklassa menn."
Enski boltinn Mest lesið Íslendingar ættu frekar að vera hræddir Handbolti Íslendingar sitja fastir í Svíþjóð Handbolti Dagur henti tveimur leikmönnum sínum upp í stúku Handbolti Skandall á EM í handbolta: „Hefði aldrei átt að gerast“ Handbolti Gleðin snerist í sorg hjá Danmörku Handbolti Austurríkismenn hjálpuðu Alfreð Handbolti Úthúðuðu Alfreð og starfið talið í húfi í kvöld Handbolti Alfreð mætti með sína menn klára í leik upp á líf eða dauða Handbolti Marokkó leitar réttar síns hjá FIFA: „Þetta sár grær ekki auðveldlega“ Fótbolti „Elvar og Ýmir voru rosalegir“ Handbolti Fleiri fréttir Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt Ekki viss um framtíð sína hjá Liverpool Nýr stjóri Chelsea sagðist sjálfur bera ábyrgð á mistökum markvarðarins „Þetta get ég og þarf að gera oftar“ Skytturnar með forystuna en Garnacho stal þrumunni af Gyökeres Guardiola segir að Haaland sé úrvinda Segir ósanngjarnt að kalla Arsenal „Set Piece FC“ Sjá meira