Innlent

Hjálmar kjörinn formaður BÍ

Hjálmar Jónsson, nýkjörinn formaður Blaðamannafélags Íslands.
Hjálmar Jónsson, nýkjörinn formaður Blaðamannafélags Íslands.

Hjálmar Jónsson var rétt í þessu kjörinn formaður Blaðamannafélags Íslands á aðalfundi félagsins. Miklar deilur voru í aðdraganda fundarins og dró Þóra Kristín Ásgeirsdóttir fyrrverandi formaður framboð sitt til baka í morgun. Hjálmar var því sjálfkjörinn.

Meirihluti stjórnarinnar neitaði að undirrita ársreikninga félagsins fyrr í vikunni og á fundinum í kvöld sögðu stjórnarmeðlimirnir Svavar Halldórsson og Sólveig Bergman af sér. Svo gerði einnig varaformaður félagsins Elva Björk Sverrisdóttir.

Hjálmar hefur síðustu ár verið framkvæmdastjóri félagsins en hann lýsti því yfir í kvöld að hann ætlaði sér ekki að halda áfram í því starfi.


Tengdar fréttir

Átökin harðna enn frekar innan Blaðamannafélagsins

Átökin innan Blaðamannafélagsins halda áfram en Vísir greindi frá því í gærkvöldi að fjórir stjórnarmenn innan Blaðamannafélagsins, þar á meðal formaður og varaformaður þess, hafi neitað að undirrita reikninga félagsins sem lagðir voru fyrir stjórnina í gærkvöldi.

Formaður BÍ: Mótframboð kom á óvart

„Ég verð að viðurkenna að þetta framboð kom mér þó á óvart,“ segir Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, en henni hefur borist mótframboð í formannsembættið frá framkvæmdarstjóra félagsins, Hjálmari Jónssyni.

Saka Hjálmar um langvarandi tregðu við upplýsingagjöf

Fjórmenningarnir í stjórn Blaðamannafélags Íslands sem neituðu að skrifa undir reikninga félagsins á stjórnarfundi í gær hafa sent frá sér yfirlýsingu sem birt er á vef BÍ. Þar segir meðal annars að ástæða þess að þau hafi ekki viljað undirrita reikningana hafi verið langvarandi tregða Hjálmars Jónssonar framkvæmdastjóra til að veita stjórninni upplýsingar um rekstur félagsins.

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir: Opið bréf til félagsmanna BÍ

Ár er síðan ég var kosin formaður Blaðamannafélags Íslands. Hópurinn er breyttur, margir hafa fengið reisupassann á fjölmiðlum eða horfið til annarra starfa. Það eru miklir átakatímar í blaðamennsku eins og öðru. Í fyrra fékk ég óskorað umboð ykkar til að stýra Blaðamannafélaginu, sem ég hef gert eftir bestu getu.

Framkvæmdastjóri BÍ hafnar gagnrýni á reikninga félagsins

Hjálmar Jónsson, framkvæmdastjóri Blaðmannafélags Íslands, segir að ákvörðun sín um framboð hafi nú dregið þann dilk á eftir sér að reynt hafi verið að þyrla upp moldviðri um reikninga félagsins. Hann segist hafa tekið ákvörðun um formannsframboð þegar ljóst var að ekkert mótframboð bærist gegn sitjandi formanni, þrátt fyrir kraumandi óánægju innan félagsins eins og hann orðar það.

Þóra Kristín dregur sig í hlé

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, hefur dregið sig í hlé og sækist ekki eftir endurkjöri á á aðalfundi í kvöld. Hjálmar Jónsson, framkvæmdastjóri félagsins, er því einn í kjöri. Hann bauð sig fram gegn Þóru Kristínu eftir harðar deilur hennar við Hjálmar um verkaskiptingu formanns, stjórnar og framkvæmdastjóra. Ágreiningur var einnig innan stjórnar félagsins um þau mál og fylgdi minnihluti stjórnar Hjálmari að málum.

Formannsslagur BÍ: Gefur kost á sér vegna óánægju

„Það hefur verið ágreiningur á milli mín og formannsins um starfsaðferðir og stefnumörkun,“ segir Hjálmar Jónsson, framkvæmdarstjóri Blaðamannafélags Íslands en hann hefur gefið kost á sér í formannsembætti félagsins.

Meirihluti stjórnar BÍ neitaði að skrifa undir reikninga

Á stjórnarfundi Blaðamannafélags Íslands sem haldinn var í kvöld neitaði meirihluti stjórnarinnar að undirrita ársreikning félagsins. Fjórir stjórnarmenn af sjö neituðu að skrifa undir, þau Þóra Kristín Ásgeirsdóttir formaður félagsins, Sólveig Bergmann, Svavar Halldórsson og Elva Björk Sverrisdóttir varaformaður.

BÍ: Tillaga um að fresta ársfundi var felld

Aðalfundur Blaðamannafélags Íslands hófst klukkan átta en mikil átök hafa verið í félaginu síðustu daga. Svavar Halldórsson stjórnarmaður lagði fram tillögu þess efnis að aðalfundinum yrði frestað um þrjár viku. Taldi hann að lögmæti fundarins væri laskað, meðal annars vegna þeirra deilna sem uppi hafa verið um ársreikninga félagsins en meirihluti stjórnarinnar neitaði að undirrita reikningana fyrir ársfundinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×