Fylgi Vinstri grænna eykst um fjórðung 8. janúar 2010 06:15 Formaður og varaformaður VG. Mynd/GVA
Stuðningur við Vinstri græn eykst verulega samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Fylgi við Samfylkinguna minnkar, en stjórnarflokkarnir myndu halda meirihluta yrðu niðurstöður kosninga í samræmi við útkomuna í könnuninni. Stjórnarflokkarnir mælast með stuðning 53,2 prósenta kjósenda samkvæmt könnuninni. Flokkarnir fengju 34 þingmenn kjörna samkvæmt könnuninni, jafn marga og þeir eru með í dag, en tveir þingmenn myndu færast frá Samfylkingunni til Vinstri grænna yrðu þetta niðurstöður þingkosninga. Sjálfstæðisflokkurinn mælist sem fyrr stærsti flokkurinn, og fengi atkvæði 31,1 prósents kjósenda væru niðurstöður kosninga í samræmi við könnun Fréttablaðsins. Flokkurinn fékk 23,7 prósenta fylgi í síðustu þingkosningum og 16 þingmenn, en fengi 20 þingmenn samkvæmt könnuninni. Í síðustu skoðanakönnun Fréttablaðsins, sem gerð var 15. október síðastliðinn, mældist Sjálfstæðisflokkurinn með 34,8 prósenta fylgi. Stuðningur við flokkinn hefur því minnkað um 3,7 prósentustig milli kannana. Samfylkingin tapar um tveimur prósentustigum frá síðustu könnun. Flokkurinn mælist nú með stuðning 28,7 prósenta kjósenda, en fékk 29,8 prósent atkvæða í þingkosningum síðasta vor. Samfylkingin er með 20 þingmenn í dag, en fengi 18 þingmenn samkvæmt könnun Fréttablaðsins. Fylgi flokksins mældist 29,8 prósent í könnun blaðsins í október. Vinstri græn bæta við sig 5,4 prósentustiga fylgi og fengi 24,6 prósent atkvæða ef kosið yrði nú. Flokkurinn fékk 21,7 prósent atkvæða í síðustu kosningum, og er því umtalsverð yfir kjörfylgi. Í síðustu skoðanakönnun Fréttablaðsins mældust Vinstri græn með 19,2 prósenta fylgi, og bæta sig því verulega milli kannana, eða um rúman fjórðung. Vinstri græn eru nú með 14 þingmenn, en bættu við sig tveimur yrðu niðurstöður kosninga í takt við nýja könnun Fréttablaðsins. Framsóknarflokkurinn stendur því sem næst í stað frá síðustu könnun. Flokkurinn mælist með stuðning 13,7 prósenta kjósenda, en fékk 14,8 prósent í síðustu þingkosningum. Í síðustu könnun Fréttablaðsins mældist flokkurinn með 14,1 prósents fylgi. Framsóknarflokkurinn er með níu þingmenn í dag og myndi halda þeim öllum samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar. Hvorki Borgarahreyfingin né klofningsflokkur hennar, Hreyfingin, myndu koma manni á þing miðað við könnunina. Borgarahreyfingin mælist með stuðning 0,4 prósenta kjósenda, en fékk 7,2 prósenta fylgi í kosningum. Hreyfingin nýtur stuðnings 1,6 prósenta aðspurðra í könnuninni. Það er raunar umtalsverð hlutfallsleg aukning frá síðustu könnun, þegar Hreyfingin fékk stuðning 0,4 prósenta aðspurðra. Hringt var í 1.100 manns fimmtudaginn 7. janúar. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni, og hlutfallslega eftir búsetu. Spurt var; Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til kosninga í dag? Alls tóku 64,3 prósent afstöðu til spurningarinnar. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira