Enski boltinn

Chelsea gerði jafntefli á Ewood Park

Elvar Geir Magnússon skrifar

Blackburn og Chelsea gerðu í dag jafntefli í ensku úrvalsdeildinni 1-1. Chelsea er nú fjórum stigum á eftir Manchester United sem trónir á toppnum en Lundúnaliðið á leik inn.

Didier Drogba kom Chelsea yfir eftir aðeins sex mínútna leik með sínu 22. úrvalsdeildarmarki á tímabilinu. El-Hadji Diouf jafnaði fyrir Blackburn í seinni hálfleik og liðin skiptu því stigunum á milli sín.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×