Íslenski boltinn

Atli Viðar: Vil ekki útiloka neitt

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Atli Viðar Björnsson er einn af heitustu bitunum á leikmannamarkaðnum þetta haustið en samningur hans við FH rennur brátt út.

Þessi þrítugi Dalvíkingur hefur verið einn skæðasti framherji landsins um árabil og ljóst að mörg lið munu sýna honum áhuga.

"Ég mun byrja á að ræða við FH. Heyra hvað þeir hafa að segja og ætla að gera. Ég hef hug á að vera áfram í FH en vil samt ekki útiloka neitt á þessu stigi," sagði Atli Viðar við Vísi í dag.

Hann hefur leikið með FH síðan 2001 og viðurkennir að ef hann langaði að prófa eitthvað nýtt þá væri þetta líklega rétti tímapunkturinn.

"Þetta er fínn tímapunktur fyrir mig til þess að setjast aðeins niður og hugsa málið. Ég mun skoða mín mál í rólegheitum og svo sjáum við hvað gerist."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×