Enski boltinn

Hodgson sá Guðlaug Victor skora af löngu færi - myndband

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Fréttablaðið/Daníel
Roy Hodgson var á meðal áhorfenda þegar varalið Liverpool vann Celtic 4-1 í æfingaleik. Guðlaugur Victor Pálsson skoraði eitt marka Liverpool.

Tom Ince kom Liverpool yfir áður en Celtic jafnaði. Jesus Fernandez kom Liverpool svo í 2-1.

Þá var komið að Guðlaugi sem var einn úti á velli, leit upp og ákvað að skjóta. Markmaðurinn missti boltann inn og Guðlaugur gat ekki annað en brosað.

Smelltu hér til að sjá myndbandið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×