Allt flug Icelandair gæti stöðvast 20. febrúar 2010 12:29
Allt flug Icelandair til og frá landinu stöðvast eftir þrjátíu og sex klukkustundir náist ekki samningar milli flugvirkja og viðsemjenda þeirra. Verkfall hefði ekki áhrif á starfsemi Iceland Express þar sem flugvirkjar þess félags eru á verktakasamningum. Sáttafundur í deilu flugvirkja og viðsemjenda þeirra hefst hjá ríkissáttasemjara klukkan fjögur í dag. Náist ekki samningar fyrir miðnætti á morgun hefst verkfall um 160 flugvirkja sem starfa hjá Icelandair og þar með stöðvast allt flug á vegum félagsins. Verkfall flugvirkja hjá Atlanta hefst hins vegar á miðnætti í kvöld verði ekki samið fyrir þann tíma, en það hefði ekki strax áhrif þar sem það nær eingöngu til flugvirkja félagsins með starfsstöð á Íslandi. En þeir sinna aðallega skipulagi viðhalds og pappírsvinnu ýmis konar sem því tengist. Síðustu kjarasamingar flugvirkja voru gerðir í maí 2008. Í upphafi viðræðna nú gerðu þeir kröfu um 25 prósenta launahækkun sem þeir miða við þróun verðlags frá því síðustu samningar voru gerðir. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar hafa þeir hins vegar dregið verulega úr kröfum sínum og eftir því sem fréttastofa kemst næst er launahækkunarkrafan komin undir 20 prósent. Upphaflega var stefnt að kjarasamningi til nokkurra mánaða að ósk Icelandair en nú er verið að ræða kjarasamning til eins árs samkvæmt heimildum fréttastofunnar. Flugvirkjar hafa ekki farið í verkfall í um 30 ár. En ef til þess kemur hefði það engin áhrif á starfsemi Iceland Express, þar sem flugvirkjar þess félags hafa ekki boðað til verkfalls og heldur ekki flugvirkjar hjá Bláfugli.
Mest lesið Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Fleiri fréttir Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Sjá meira