Bæjarstjóranum óheimilt að framsenda læknisvottorð starfsmanns Breki Logason skrifar 23. september 2010 12:59 Ásgerður Halldórsdóttir.
Ásgerði Halldórsdóttur, bæjarastjóra Seltjarnarnesbæjar, var ekki heimilt að framsenda læknisvottorð starfsmanns sem sakar hana um einelti, á nokkra lykilstarfsmenn bæjarins að mati Persónuverndar. Þetta kemur fram í úrskurði nefndarinnar sem féll í síðustu viku en málið á sér talsvert langan aðdraganda. Ólafur Melsted fyrrum framkvæmdarstjóri tækni- og umhverfissviðs bæjarins fór í leyfi sökum veikinda vegna meints eineltis af hálfu bæjarstjóra. Fékk hann vottorð frá heimilislækni sem taldi hann með öllu óvinnufærann vegna sjúkdómsins og ráðlagði honum að taka sér frí. Bæjarstjóri áframsendi hinsvegar læknisvottorðið á nokkra lykilstarfsmenn Seltjarnarnesbæjar og í svari lögmanns bæjarins vegna málsins kemur fram að Ásgerður telji ekkert hafa komið fram í vottorðinu sem ekki sé almenns eðlis. Þar sé hvorki að finna sérstakar upplýsingar um heilsufar eða lýsingar sjúkdóms né aðrar upplýsignar sem ætla má að meðhöndla beri með sérstakri varúð, eins og það er orðað. Ólafur og lögmaður hans leituðu því til persónuverndar sem hefur úrskurðað í málinu. Þar segir meðal annars að Persónuvernd telji það að greina samstarfsmönnum frá fjarveru eins starfsmanns vegna veikinda sé ekki miðlun persónuupplýsinga. Upplýsingar á læknisvottorðum séu hinsvegar viðkvæmar persónuupplýsingar og bæjarstjóri hafi ekki sýnt fram á að að nauðsynlegt hafi veriða að senda öðrum starfsmönnum bæjarins vottorðið sérstaklega. Í ljósi þess kemst Persónuvernd að því að áframsending lænkisvottorðsins hafi verið óheimil. Ólafur er enn í veikindaleyfi og undirbýr nú dómsmál á hendur Seltjarnarnesbæ, vegna meints eineltis bæjarstjóra.
Mest lesið Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Fleiri fréttir „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Sjá meira