Enski boltinn

Forysta Chelsea fjögur stig eftir 2-0 sigur á Arsenal

Elvar Geir Magnússon skrifar
úr leiknum í dag. Alex Song og Florent Malouda eigast við.
úr leiknum í dag. Alex Song og Florent Malouda eigast við.

Hið ógnarsterka lið Englandsmeistara Chelsea vann 2-0 sigur á Arsenal í Lundúnaslag í dag. Það voru þeir Didier Drogba og Alex sem skoruðu mörkin í sitt hvorum hálfleiknum.

Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Drogba sem átti góðan leik skoraði markið sem skildi liðin að í leikhléi. Alex skoraði svo annað mark Chelsea með stórglæsilegum þrumufleyg beint úr aukaspyrnu og heimamenn unnu verðskuldaðan sigur á Stamford Bridge.

Chelsea er með 18 stig á toppi deildarinnar og markatöluna 23:2. Arsenal er sjö stigum á eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×