Engin ákvörðun tekin fyrr en í lok apríl 12. mars 2010 04:00 Þýska sendinefndin Fjórir af sex nefndarmönnum á blaðamannafundi í þýska sendiráðinu við Laufásveg í gær, frá vinstri: Michael Stübgen frá CDU/CSU, Andrej Hunko frá Vinstriflokknum, Werner Schieder frá SPD og Stefan Ruppert frá FDP. fréttablaðið/VILHELM
Evrópusambandið „Að okkar mati verður ákvörðun um upphaf aðildarviðræðna við Ísland ekki tekin formlega á fundi leiðtoga Evrópusambandsríkjanna á fundi þeirra 25. og 26. mars, heldur á fundi ráðherraráðsins, líklega undir lok aprílmánaðar," segir Michael Stübgen, talsmaður Evrópumálanefndar þýska þingsins, en hún er stödd hér á landi. Nefndina skipa fulltrúar allra flokka á þýska þinginu. Þeir voru einróma um að engrar andstöðu væri að vænta frá þýska sambandsþinginu við að aðildarviðræður ESB við Ísland hefjist hið fyrsta. Samkvæmt nýjum lögum í Þýskalandi hefur þingið hins vegar rétt til að taka afstöðu til ákvarðana sem ráðherrar í ríkisstjórn Þýskalands taka á vettvangi Evrópusambandsins. Þingmenn þýsku sendinefnd-arinnar eiga allir sæti í Evrópunefnd þýska þingsins, sem þessa dagana vinnur að því að undirbúa málið fyrir þingið. Stübgen segir að vinnu nefndarinnar gæti lokið fyrir 25. mars en málið gæti einnig dregist nokkrar vikur, eða fram í apríl. „Sem stendur lítur út fyrir að formleg ákvörðun verði síðan tekin á fundi utanríkisráðs eða almenna ráðs Evrópusambandsins í lok apríl eða í byrjun maí," segir Stübgen. Bæði þessi ráð eru skipuð utanríkisráðherrum ESB-ríkja en ekki leiðtogum ríkjanna. Leiðtogaráðið gæti þó sent frá sér yfirlýsingu, þar sem stuðningi er lýst við viðræður. Sú yfirlýsing hefði vissulega mikið vægi, en væri þó ekki formleg ákvörðun Evrópusambandsins. Hann tekur fram að margt sé óljóst, bæði um ákvarðanatöku á vettvangi þýska þingsins vegna þessara nýju laga sem nú reynir á í fyrsta sinn, og á vettvangi Evrópusambandsins þar sem svo stutt er síðan Lissabon-sáttmálinn tók gildi. Stübgen segir að aðild Íslands að Evrópusambandinu verði sambandinu kærkomin af ýmsum ástæðum. „Ísland hefur í mörg ár verið áreiðanlegur samstarfsaðili ES," segir hann, og nefnir meðal annars Evrópska efnahagssvæðið og Schengen-samninginn. „Á hinn bóginn höfum við tekið inn mörg ný aðildarríki á síðustu árum, sem hafa verið tiltölulega fátæk. Evrópusambandið er þannig uppbyggt að það hefur hjálpað þessum löndum að þróast, en satt að segja gleðjumst við sérstaklega þegar land fær aðild sem greiðir meira til sambandsins en það fær úr sjóðum þess, eins og tilfellið verður með Ísland." gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Fleiri fréttir Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Sjá meira