Kínverjar refsa Norðmönnum Óli Tynes skrifar 11. október 2010 10:11 Frá Sjanghæ. Mynd/AP
Kínverjar hafa aflýst fundi með sjávarútvegsráðherra Noregs sem átti að halda á miðvikudag. Lisbeth Berg-Hansen ráðherra er nú í Sjanghæ til þess að heimsækja norska skálann á heimssýningunni sem þar stendur yfir. Kínverjar eru Norðmönnum mjög reiðir fyrir að veita andófsmanninum Liu Xiabo friðarverðlaun Nóbels og er afboðun fundarins með sjávarútvegsráðherranum rakin til þess. Sendiherra Noregs í Peking var kallaður inn á teppið og skammaður. Og sendiherra Kína í Noregi sendi frá sér yfirlýsingu þar sem sagði að Liu Xiabo væri glæpamaður sem hefði brotið kínversk lög og sæti því í fangelsi. Kínverjar gengu svo langt að segja að þessi gjörningur muni skaða mjög samskipti landanna. Og þar er ekkert smáræði í húfi. Fríverslunarsamningur milli landanna er langt á veg kominn. Nú er ekki talið ólíklegt að hann verði settur á ís, eða jafnvel alveg horfið frá honum. Kína er orðið þriðja mikilvægasta innflutningslandið gagnvart Noregi, á eftir Svíþjóð og Þýskalandi. Útflutningur til Kína hefur einnig vaxið gríðarlega á undanförnum árum. Sérstaklega flytja Norðmenn þangað sjávarafurðir. Á fyrstu níu mánuðum þessa árs var flutt út sjávarfang fyrir sem svarar tuttugu og fimm milljörðum íslenskra króna. Listbeth-Berg Hansen segist þó vongóð um að löndin muni áfram eiga góð samskipti. Hún bendir á að ríkisstjórn Noregs hafi jú ekkert með Nóbelsnefndina að gera.
Mest lesið Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Erlent Fleiri fréttir Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Sjá meira